157. löggjafarþing — 92. fundur,  13. apr. 2026.

greining á upplýsingagjöf í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu.

[15:19]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ríkisstjórnin er að leggja til að þjóðin kjósi í lok ágúst um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mikið hefur verið rætt um það að leyfa þjóðinni að ráða en lýðræði snýst ekki aðeins og eingöngu um það að kjósa. Það snýst líka um að kosið sé við sanngjarnar og traustar aðstæður þar sem slík ákvörðun getur haft víðtæk áhrif á framtíð landsins. Þess vegna skiptir máli að umræðan sem leiðir til þess sé opin, upplýst og byggð á traustum forsendum.

Frú forseti. Víða um heim hafa komið upp alvarleg tilfelli um samhæfðar áróðursherferðir í aðdraganda kosninga eða þjóðaratkvæðagreiðslna þar sem fölsuð myndbönd, falskar síður og gerviaðgangar að samfélagsmiðlum hafa verið notuð til þess að hafa áhrif á álit fólks og niðurstöðu. Þessar aðferðir eru hluti af nýjum veruleika sem mörg lýðræðisríki hafa þurft að bregðast við. Þess vegna hafa mörg ríki styrkt varnar- og öryggiskerfi sín í aðdraganda kosninga. Markmiðið með því er ekki að hafa áhrif á niðurstöðurnar heldur til þess að tryggja að umræðan sem leiðir til þeirra fari fram við skýrar og gagnsæjar leikreglur. Á undanförnum árum hafa orðið grundvallarbreytingar á því hérlendis, alveg eins og erlendis, hvernig pólitísk umræða mótast. Samfélagsmiðlar og stafrænir miðlar hafa gjörbreytt upplýsingaflæði. Það er auðveldara að dreifa rangfærslum og við höfum séð dæmi um skipulagðar áhrifaherferðir í aðdraganda kosninga.

Ég vil því spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Getur hæstv. ráðherra upplýst okkur um það af hverju tekin var ákvörðun um að kalla ekki eftir formlegri greiningu á þeim áskorunum sem fylgja breyttu upplýsingaumhverfi og ráðast í þær breytingar sem þörf er á, líkt og önnur ríki hafa gert, áður en málið var lagt fram, sérstaklega þegar það varðar svona risavaxið mál eins og þjóðaratkvæðagreiðslu?