157. löggjafarþing — 92. fundur,  13. apr. 2026.

greining á upplýsingagjöf í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu.

[15:25]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég held að þetta snúist um allar kosningar, ekki bara þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Við þurfum að tryggja að fólkið okkar gangi að staðreyndum og það sem rifist er um eða að deilan sé einfaldlega um það sem eru skoðanir fólks. Staðreyndir liggi fyrir með skýrum hætti. Auðvitað er búið að vera að vinna að því, ekki bara fyrir þessa atkvæðagreiðslu heldur líka á síðustu misserum, að reyna að tryggja að upplýsingaóreiðan taki ekki yfir, falsfréttir taki ekki yfir. En við sjáum þetta auðvitað líka á því fábrotna, að mínu mati, fjölmiðlaumhverfi sem er í dag. Við vitum alveg hverjir eru helstu eigendur að t.d. eina prentmiðlinum sem eftir er og það er ágætt að við séum bara upplýst um það. Mér finnst það skipta máli að við vitum hverjir það eru sem eiga þessa miðla hverju sinni, hvort sem það eru podköst eða prentmiðlar eða aðrir, með fullri virðingu fyrir því. Við verðum að gera okkur grein fyrir því hverjir standa á bak við miðlana, (Forseti hringir.) hverjir eru með fjármagnið til að ýta undir ákveðna afstöðu almennings. Það sem skiptir mestu máli er að almenningur fær í ágúst (Forseti hringir.) tækifæri til að greiða atkvæði um það hvort við göngum til samninga og fáum að sjá samning við Evrópusambandið. Út á það gengur þetta og ég vona að við náum öll að vinna af heilindum að því markmiði.