Atvinnustefna og innflytjendamál.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir fyrirspurnina. Ég skil áhyggjur hans í ljósi þess að hann hefur sjálfur lýst því yfir að það ætti að íhuga að ganga úr Evrópska efnahagssvæðinu vegna innflytjenda, nokkuð sem ég er hjartanlega ósammála og ég held að það finnist varla handfylli fólks sem telji það réttu leiðina.
Mig langar líka að nefna í þessu samhengi, vegna þeirra áhyggna sem hv. þingmaður hefur um það að hér verðum við gestir í eigin landi vegna allra þessara útlendinga og innflytjenda sem koma hingað til að skapa sér líf, að pabbi minn var innflytjandi fyrir hálfri öld og varð býsna góður Íslendingur mjög fljótlega. Innflytjendur verða nefnilega íbúar landsins ef við tökum vel á móti þeim og það væri gott ef hv. þingmaður og hans flokkur hefðu þroska til að nálgast málið á þann hátt.
En að atvinnustefnunni, verðmætasköpuninni, umræðunni um að við þurfum að fjölga stoðum undir útflutningsgreinarnar okkar, um að við þurfum að efla hagvöxt per mann. Það snýst ekki um að fækka fólki, það snýst um að efla þessar greinar og þar erum við með aðgerðaáætlun og plan um það hvernig við vinnum þetta áfram. Margt af þessu er þegar komið í framkvæmd, m.a. í mínu ráðuneyti sem heldur utan um okkar helstu atvinnugreinar. Þetta er verkefnið. Við þurfum að vera öll saman í þessu. Markmiðið um að hætta að einblína á hagvöxt per einstakling hefur ekkert með innflytjendastefnu að gera. Það hefur bara með það að gera að það er óskynsamleg efnahagsstefna. Það er óskynsamleg atvinnustefna, það er óskynsamleg samgöngustefna. Þetta er ekki leiðin áfram. Til að byggja undir hagsæld hér og hagvöxt þá þurfum við að fara að efla okkar helstu framleiðnigreinar með nýsköpun, með einföldun regluverks, með því að búa svo um hnútana að við náum að vaxa áfram, hvort sem það eru afkomendur Íslendinga sem hér hafa búið frá því að hingað komu nýbúar frá Noregi eða nýir nýbúar. Við erum öll í þessu saman að efla hagsæld hér á landi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)