Atvinnustefna og innflytjendamál.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir vægast sagt upplýsandi svar og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þær upplýsingar að með því að flytja til landsins verður þú íbúi í landinu. Það er gaman að læra það. Ég vek hins vegar athygli á því að það er munur á landnemum og innflytjendum. Ég hef nú fengið tiltölulega skýrar upplýsingar frá hæstv. ráðherra um að þessi atvinnustefna spili þá, að mati hæstv. atvinnuvegaráðherra, ekki saman við innflytjendastefnu í landinu og það eru nokkur tíðindi miðað við t.d. umræðu hæstv. forsætisráðherra sem hefur talað á aðra lund og tengt þetta hvort tveggja saman. En ef ég skil hæstv. atvinnuvegaráðherra rétt þá er það þannig að mati hæstv. ráðherra, í huga hans, alveg sama hver hlutföll innflytjenda og heimamanna verða hér um ókomna tíð — alveg sama — og atvinnustefnan snýst bara um það hvernig störf þessir innflytjendur vinna en ekki að atvinnustefnan eigi ekki að knýja áfram þörf á innfluttu vinnuafli. Það er mín skoðun að atvinnustefnan eigi að draga úr þörfinni á innfluttu vinnuafli. (Forseti hringir.) Það er mín skoðun og það er held ég skoðun hæstv. forsætisráðherra. En ég vil fá að vita hvort hæstv. atvinnuvegaráðherra telji þá engan veginn markmið þessarar stefnu að draga úr þörfinni á innfluttu vinnuafli.