Atvinnustefna og innflytjendamál.
Frú forseti. Þetta er óskiljanleg túlkun eða óskhyggja hv. þingmanns um það hvað þessi atvinnustefna felur í sér. Þetta er stefna, þetta er vaxtarplan til tíu ára sem lýtur að atvinnugreinum landsins. Getur verið að hv. þingmaður sé að rugla þessu saman við eitthvað annað? Ég raunverulega — ég er ekki að reyna að snúa út úr, það er ekki vani minn hér, ég reyni að svara heiðarlega — skil ekki hvert hv. þingmaður er að fara, að þýfga mig sem atvinnuvegaráðherra um hvað í atvinnustefnunni sem unnið hefur verið að í samráði við alla helstu hagaðila í útflutningsgreinunum okkar, hvernig hægt er að tengja það við stefnu í innflytjendamálum á annan hátt en þann, og ég tek heils hugar undir mikilvægi þess að við búum svo um hnútana, að innflytjendur almennt, og þetta er skoðun mín óháð atvinnustefnunni, eigi sem bestan kost á að aðlagast íslensku samfélagi. Við þurfum að gera gangskör að því, m.a. og ekki síst með skipulagðri íslenskukennslu.
Atvinnustefnan lýtur að verðmætasköpun í landinu. (Forseti hringir.) Þetta er í fyrsta skipti sem slík stefna til lengri ára er útbúin og ég vona að hér hafi verið brotið blað og að komandi ríkisstjórnir muni vinna nákvæmlega svona en ekki bara alltaf horfa til næstu ára. Við þurfum að horfa lengra fram í tímann til að búa svo um hnútana að útflutningsgreinarnar okkar vaxi og dafni.