leiðrétting.
Frú forseti. Ég vildi hér leiðrétta orð mín varðandi það sem ég hélt fram í seinni fyrirspurn minni til hæstv. utanríkisráðherra. Þar sagði ég að farið hefði verið yfir óskatímalínu ráðuneytisins hvað varðar ESB-málið á fundi utanríkismálanefndar. Hið rétta er að það var á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og leiðréttist það hér með. Hafa ber það sem rétt er í þessum efnum og það var það sem ég var að spyrja hæstv. ráðherra út í þó að svarið vanti enn þá. En ráðherra er enn í salnum og gæti komið hér á eftir mér og farið yfir tímalínuna ef hann óskar þess.