157. löggjafarþing — 92. fundur,  13. apr. 2026.

virðisaukaskattur og samkeppnislög.

607. mál
[15:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um virðisaukaskatt annars vegar og samkeppnislögum hins vegar. Tilgangur frumvarpsins er að bregðast tímabundið við mikilli verðhækkun á eldsneyti vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum. Lagt er til að skatthlutfall virðisaukaskatts vegna sölu á eldsneyti sem fellur undir tiltekin tollskrárnúmer eldsneytis, þ.e. bensín og gasolía eða dísilolía, verði lækkað í 11%. Með þessu eru áhrif mikilla verðsveiflna og röskunar á alþjóðlegum orkumörkuðum milduð verulega.

Í frumvarpinu er sérstaklega áréttað að við framkvæmd eftirlits með því að tímabundin lækkun virðisaukaskatts skili sér að fullu í útsöluverði geti Samkeppniseftirlitið beitt þeim heimildum sem því eru veittar með lögum.

Forseti. Í byrjun þessa árs varð veruleg lækkun á eldsneytisverði hér á landi með breytingum á skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Kílómetragjaldið varð almennt og eini sértæki skatturinn á jarðefnaeldsneyti er kolefnisgjald. Frá byrjun mars á þessu ári hafa síðan umtalsverðar verðsveiflur og verðhækkanir orðið á eldsneyti hér á landi vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum. Áfram er mikil óvissa um þróun mála og líkur benda til þess að enn um sinn sé veruleg hætta á áframhaldandi sveiflum á eldsneytisverði á alþjóðamörkuðum. Staðan í augnablikinu er sú að verð á olíufati er um 100 dollarar og hefur hækkað um 54% það sem af er þessu ári. Það er gríðarleg hækkun og til þess fallin að valda usla víða.

Vegna þessa óvissuástands telur ríkisstjórnin rétt að grípa til tímabundinna ráðstafana í fjóra mánuði og lækka skatthlutfall virðisaukaskatts úr 24% í 11% frá og með 1. maí og til og með 31. ágúst. Þetta er skjótvirk og einföld leið.

Forseti. Verðhækkanir og miklar sveiflur á verði eldsneytis hafa ekki einungis bein áhrif á útgjöld heimila og rekstrarkostnað fyrirtækja heldur geta þær einnig haft víðtæk áhrif á verðlag í hagkerfinu öllu. Eldsneyti er stór kostnaðarþáttur í flutningum, dreifingu vöru og margvíslegri atvinnustarfsemi. Breytingar á verði þess hafa því áhrif á verð annarrar vöru og þjónustu, auka verðbólguþrýsting og torvelda viðleitni stjórnvalda til að stuðla að stöðugu verðlagi og um leið efnahagslegum stöðugleika í hagkerfinu öllu.

Þótt virðisaukaskattskerfið byggist almennt á því að undanþágur og frávik frá almennu skatthlutfalli séu sem fæstar þykir rétt að víkja tímabundið frá þeirri meginreglu í núverandi ástandi og óvissu. Tímabundin og vel afmörkuð lækkun virðisaukaskatts mildar áhrif hækkana á heimili, atvinnulíf og verðlag.

Forseti. Til þess að frumvarpið hafi tilætluð áhrif er grunnforsenda að lækkun á eldsneytisverði samsvari að fullu lækkun hinna opinberu gjalda og skili sér þannig beint í lækkun eldsneytisverðs. Engin ástæða er til að ætla annað en að seljendur eldsneytis svari kallinu og sjái til þess að svo verði strax á fyrsta degi. Engu að síður er rétt að hafa vaðið fyrir neðan sig. Þess vegna er brýnt að Samkeppniseftirlitið, í samstarfi við verðlagseftirlit ASÍ, FÍB, Neytendastofu og viðeigandi ráðuneyti, hafi sérstakt eftirlit með framkvæmdinni. Nauðsynlegt er að tryggja líka að stjórnvöld hafi ákveðin úrræði til að bregðast við ef í ljós koma vanhöld á því að lækkun virðisaukaskatts skili sér til neytenda í útsöluverði eldsneytis. Af þessum sökum er gert ráð fyrir að ráðherra samkeppnismála geti brugðist við með ákveðnum hætti og kveðið á um sérstakar aðgerðir með reglugerð. Þetta geti ráðherra samkeppnismála gert að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins og að undangengnu samráði við ráðherra skattamála. Aðgerðir sem grípa má til með reglugerð samkvæmt þessu geta falist í stýringu á verðlagi, svo sem með ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar. Ákvæðið á sér fyrirmynd í eldri samkeppnislögum þar sem kveðið var á um heimild ríkisstjórnar til að grípa til sambærilegra aðgerða ef neyðarástand skapaðist af óvæntum ástæðum, svo sem vegna náttúruhamfara, styrjaldarástands eða óvenjulegra verðsveiflna á innlendum eða erlendum mörkuðum.

Forseti. Gert er ráð fyrir að skattalækkunin muni lækka beinan kostnað hjá heimilum sem nota bifreiðar og tæki sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Hið sama gildir um fyrirtæki og stofnanir sem ekki stunda virðisaukaskattsskylda starfsemi, t.d. sveitarfélög. Verð til neytenda lækkar að öðru óbreyttu um 10,5%. Tekjutap ríkisins má ætla að verði um 3,5 milljarðar kr. á árinu. Ekki er gert ráð fyrir nýjum og auknum fjárheimildum vegna samþykktar frumvarpsins. Reiknað er með að bein áhrif á vísitölu neysluverðs verði tæplega 0,3% til lækkunar. Sú lækkun mun ganga til baka að gildistíma loknum í byrjun september.

Forseti. Frumvarpinu fylgir ítarleg greinargerð og vísa ég til hennar um nánari yfirferð og mat á áhrifum og fleiri atriði. Eðli málsins samkvæmt er mikilvægt að frumvarpið fái skjóta afgreiðslu í þingnefnd og síðar í þingsal til þess að unnt verði að hrinda efni þess í framkvæmd frá og með 1. maí. Ég treysti því að svo verði.

Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.