fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Áætlunin markar skýr tímamót í opinberum fjármálum þar sem megináhersla er lögð á að treysta stoðir íslensks efnahagslífs með auknum aga, festu og ábyrgri fjármálastjórn. Hún er ekki einungis framsetning á tekjum og gjöldum næstu ára heldur heildstæð stefnumörkun um það hvernig við ætlum að byggja upp sjálfbært hagkerfi, styrkja viðnámsþrótt ríkissjóðs og skapa skilyrði fyrir stöðugleika og bætt lífskjör til lengri tíma.
Stefnumótun opinberra fjármála til næstu fimm ára er ávallt vandasamt verkefni. Hún er háð fjölmörgum óvissuþáttum sem geta haft veruleg áhrif á niðurstöður, bæði innan lands og utan. Það kennir sagan okkur vel. Undanfarin ár hafa verið skýr áminning um hversu hratt forsendur geta breyst, hvort sem litið er til alþjóðlegra hagssveiflna, breytinga á fjármálamörkuðum eða áfalla innan lands. Þessi reynsla undirstrikar mikilvægi þess að opinber fjármál séu rekin af varfærni og með langtímasjónarmið að leiðarljósi. Af þeirri reynslu drögum við þann lærdóm að ríkissjóður þarf að vera nægilega sterkur til að mæta áföllum af festu, án þess að grípa þurfi til umfangsmikillar skuldasöfnunar, langvarandi hallareksturs eða skyndilegs og sársaukafulls niðurskurðar. Fjármálaáætlunin sem hér er lögð fram er mótuð með þetta að markmiði. Hún felur í sér skýra stefnu um að byggja upp styrk ríkissjóðs, auka fyrirsjáanleika í opinberum fjármálum og draga úr sveiflum í rekstri hins opinbera.
Stefna ríkisstjórnarinnar er skýr. Við ætlum að ná jafnvægi í ríkisfjármálum, stöðva hallarekstur ríkissjóðs þegar árið 2027 og tryggja að skuldir hins opinbera taki að lækka markvisst á tímabili áætlunarinnar. Þetta eru ekki einungis töluleg markmið heldur grundvallarforsenda stöðugleika í efnahagslífinu. Traust ríkisfjármál skapa forsendur fyrir lækkun verðbólgu og vaxta sem skilar sér að lokum í bættum lífskjörum almennings.
Forseti. Reynslan hefur sýnt að þegar ríkisfjármál fara úr skorðum getur það haft víðtæk áhrif á allt samfélagið. Há skuldastaða og vaxandi vaxtabyrði draga úr svigrúmi stjórnvalda til að fjárfesta í mikilvægustu verkefnum samfélagsins. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á að snúa þróuninni við. Í dag eru skuldir hins opinbera enn um 44% af vergri landsframleiðslu en samkvæmt þessari áætlun mun það hlutfall lækka niður í um 41% árið 2031. Þetta er skýr vísbending um að við erum að fara í rétta átt.
Til að ná þessum markmiðum beitum við skýrum og markvissum verkfærum. Stöðugleikareglan gegnir þar lykilhlutverki. Hún setur skorður á útgjaldavöxt ríkisins og tryggir að hann haldist í samræmi við raunhæfa vaxtargetu hagkerfisins til lengri tíma. Raunvöxtur útgjalda verður að jafnaði um 1–1,5% á ári, sem er vel undir þeim mörkum sem reglan setur. Þetta þýðir í reynd að ríkið eyðir ekki umfram getu, heldur byggir upp svigrúm á góðum tímum sem svo er hægt að nýta þegar á móti blæs. Á sama tíma er verið að styrkja rammafjárlagagerð. Með því að setja heildarramma fyrir útgjöld og fela ráðherrum ábyrgð á forgangsröðun innan síns sviðs er verið að styrkja ábyrgð, auka gagnsæi og stuðla að skilvirkari nýtingu fjármuna. Þetta vinnulag krefst þess jafnframt að verkefni ríkisins séu í stöðugri endurskoðun og mat lagt á hvort þau skili tilætluðum árangri.
Staða efnahagsmála undirstrikar mikilvægi þessarar stefnu. Há verðbólga og vextir hafa áhrif á heimili og fyrirtæki um land allt. Aðhald í ríkisfjármálum er því ekki markmið í sjálfu sér heldur leið til að bæta lífskjör. Með ábyrgri fjármálastjórn skapast forsendur fyrir lægri vöxtum, aukinni fjárfestingu og stöðugra efnahagsumhverfi.
Vaxtagjöld ríkisins eru enn umtalsverð og nema hundruðum milljarða króna á tímabilinu. Það er fé sem ella gæti runnið til velferðarmála, innviða og annarra mikilvægra verkefna. Að lækka skuldir og þar með vaxtabyrði er því ekki aðeins hagfræðilegt markmið heldur samfélagslegt réttlætismál.
Forseti. Aðhald í ríkisfjármálum er lykill að árangri. Með því að tryggja að tekjur og gjöld fari saman og að útgjöld vaxi ekki hraðar en hagkerfið er unnt að stuðla að stöðugleika. Samkvæmt áætluninni mun hlutfall ríkisútgjalda af vergri landsframleiðslu lækka úr 30,7% í 29,5% í lok tímabilsins. Þetta er skýr vísbending um að ríkið er að taka til í eigin rekstri. En aðhald þýðir ekki niðurskurður á grunnþjónustu. Þvert á móti er lögð rík áhersla á að styrkja þá þjónustu sem skiptir almenning mestu máli. Á tímabili fjármálaáætlunar verður heilbrigðiskerfið styrkt verulega, meðal annars með fjölgun hjúkrunarrýma og aðgerðum til að stytta biðlista. Framlög til heilbrigðismála aukast um um 67 milljarða kr. Þá aukast framlög til velferðarkerfisins um 18,6 milljarða kr. með auknum framlögum til félags- og tryggingamála.
Fjárfestingar í innviðum verða áfram umtalsverðar. Fjárfestingarframlög ríkisins nema um 455 milljörðum kr. á tímabili áætlunarinnar þar sem uppbygging nýs Landspítala vegur þungt, auk fjárfestinga í samgöngum og öðrum lykilinnviðum. Háskólastigið verður eflt með auknum framlögum og áfram verður lögð áhersla á nýsköpunar-, rannsóknar- og þekkingargreinar.
Á sama tíma er ljóst að aðhald eitt og sér nægir ekki. Það þarf einnig að tryggja að hver króna nýtist sem best. Því er lögð áhersla á aukna skilvirkni í opinberum rekstri, skýra forgangsröðun og stöðugt endurmat verkefna ríkisins. Hagræðingaraðgerðir sem nema uppsafnað yfir 170 milljörðum kr. á tímabili fjármálaáætlunar og hófleg fækkun stöðugilda eru liður í þeirri vegferð.
Forseti. Á tekjuhlið ríkissjóðs er gert ráð fyrir stöðugum en hóflegum vexti tekna yfir tímabil áætlunarinnar, sem endurspeglar aukin umsvif í hagkerfinu samhliða verðbreytingum. Stefna stjórnvalda í skattamálum felur í sér að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs án þess að leggja óhóflegar byrðar á heimili og fyrirtæki. Í því felst m.a. að bæta skattskil, loka glufum í skattkerfinu og fækka undanþágum sem geta grafið undan jafnræði og skilvirkni. Í þessum tilgangi er ráðist í markvissar aðgerðir á tekjuhliðinni. Þar má nefna breytingar á gjaldtöku á ökutæki og eldsneyti til að mæta orkuskiptum og breyttri samsetningu samgangna, lækkun skattstyrkja innan virðisaukaskattskerfisins til að einfalda kerfið og breikka skattstofna, aukna og markvissari gjaldtöku af ferðamönnum og nýtingu náttúruauðlinda sem miðar að því að tryggja sanngjarna hlutdeild samfélagsins í þeim verðmætum sem þar verða til. Þá er einnig gert ráð fyrir innleiðingu lágmarksskattlagningar á fjölþjóðleg fyrirtæki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sem styrkir tekjustofna og stuðlar að auknu jafnræði í alþjóðlegri skattlagningu. Þrátt fyrir þessar aðgerðir er gert ráð fyrir að hlutfall tekna af vergri landsframleiðslu lækki á tímabilinu sem endurspeglar skýran vilja stjórnvalda til að halda skattbyrði í skefjum og styðja við áframhaldandi hagvöxt og stöðugleika í efnahagslífinu.
Forseti. Fjármálaáætlunin byggir á jafnvægi aðhalds og uppbyggingar. Annars vegar er tryggt að opinber fjármál séu sjálfbær en hins vegar að áfram sé fjárfest í þeim innviðum og þjónustu sem samfélagið krefst. Hallalaus fjárlög eru ekki endapunktur heldur upphaf að nýju jafnvægi. Samkvæmt áætluninni nær afkoma hins opinbera jafnvægi árið 2027 og verður í afgangi sem nemur um 0,5% af vergri landsframleiðslu árið 2031. Sú þróun, ásamt vaxandi landsframleiðslu, mun leiða til lækkunar skulda og minni vaxtabyrði. Þessi vegferð krefst aga, festu og skýrrar sýnar. Hún krefst þess að við stöndum sameiginlega vörð um markmið áætlunarinnar og tökum ábyrgar ákvarðanir, jafnvel þegar þær eru erfiðar. Þegar tekjur og gjöld eru í samræmi skapast raunverulegt svigrúm til að byggja upp sterkara samfélag til framtíðar. Trúverðugleiki er lykilatriði. Það skiptir máli að orð og athafnir fari saman. Með þessari áætlun sendum við skýr skilaboð: Ríkisstjórnin stendur við sín markmið. Það er forsenda þess að vextir lækki og lífskjör batni.
Í greinargerð með tillögunni er ítarlega gerð grein fyrir forsendum, markmiðum og helstu áherslum áætlunarinnar. Ég legg til að málinu verði vísað til hv. fjárlaganefndar að lokinni þessari umræðu.