157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:47]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurninguna. Nú kannast ég ekki við hvað hann er að fara með að ég hafi ekki tekið þátt í umræðum í gær. Þvert á móti þá tók ég virkan þátt í umræðum hér í gær og sennilega hefur hann bara verið farinn úr salnum þegar ég kom upp í andsvör við ræðumenn.

Varðandi álitsgerð fjármálaráðs þá er það auðvitað hlutverk fjármálaráðs að rýna til gagns. Ég tek að vísu ekki undir það að þetta sé eitthvað harðara álit heldur en þau hafa vanalega verið.

Varðandi athugasemdir fjármálaráðs við stöðugleikareglu þá var þeim athugasemdum vandlega svarað í fyrra og kemur nokkuð á óvart að þær komi fram aftur, sérstaklega í ljósi þess að fjármálaáætlun ber þess glögglega merki hvers konar fyrirbæri stöðugleikareglan er. Þar eru tvö viðmið; annars vegar um útgjaldavöxt ríkisins sem er haldið í skefjum, sem er mikil framför frá fyrri afkomureglu, en til viðbótar er þar skuldaviðmið. Það skuldaviðmið er það sem virkjast þegar staða ríkissjóðs er sú sem hún er núna eftir áralangt tímabil hallareksturs þar sem horfa verður sérstaklega til skuldaþróunar. Það einkennir alla áætlunina. Útgjöld ríkisins vaxa langt innan útgjaldareglunnar einmitt til þess að mæta þeirri kröfu að við lækkum skuldir. Það er sem sagt sá aðalpunktur í þessari áætlun að útgjaldareglan er ekki bindandi. Hún er aldrei bindandi, ekki eitt einasta ár áætlunarinnar. Það sem stýrir ákvarðanatökunni, það sem stýrir áherslunni, er markmið okkar um að lækka skuldir í samræmi við þá stefnumörkun sem kom fram í fjármálastefnu sem lögð var fram hér í fyrra og fjármálaáætlun er þá í samræmi við þau viðmið.

(Forseti (ÞSv): Forseti biðst forláts á því að hafa ekki verið með augun á klukkunni og fékk því ráðherrann ríflegan tíma.)