fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir síðari spurninguna. Það er varhugavert að beita þumalputtareglum sem menn beita í rekstri heimilis síns á ríkissjóð og það er athyglisvert að heyra hv. þingmann tala um að það sé engin skuldalækkun þegar skuldir ríkisins lækka úr 44% af landsframleiðslu niður í 41% á tímabili áætlunarinnar. Einhver gæti sagt: Ætti ekki krónutalan að lækka? en það fer algerlega eftir hlutum eins og verðlagsforsendum. Svo er það auðvitað þannig að ríki, öfugt við einstaklinga, fara aldrei á eftirlaun. Ríki viðhalda skuldum og rúlla þeim á undan sér. Það gera öll ríki. Þau ríki sem lækka hjá sér skuldir lækka þær með þessari aðferð. Undantekningarnar frá því eru ríki sem finna olíu eða eitthvað sambærilegt og búa raunverulega yfir það styrkum efnahag að þau þurfa alls ekki að skulda. En skuldir ríkisins eru ekkert óeðlilegar. Það er eðlilegt að ríki skuldsetji sig. Íslenska ríkið hefur gengið of langt og þess vegna ber þessi fjármálaáætlun skýr merki þess að þessi ríkisstjórn ætlar að snúa þeirri þróun við. En það að skuldir lækki vegna þess að hlutfall þeirra af vergri landsframleiðslu lækkar er fullkomlega eðlilegt og lýsir þá raunverulega bara því að útgjöld ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu eru í jafnvægi við tekjur ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu, meira að segja þannig að það tekst að lækka skuldahlutfallið.
Varðandi síðan kostnaðarþróun og vangaveltur fjármálaráðs þá er alveg ljóst að það sem á að gera með vísitöluuppfærslu spánna er að reikna út hvernig þróun kostnaðar er á þeim útgjöldum sem ríkið hefur. Þá er ekki eðlilegt að miða við vísitölu neysluverðs vegna þess að ríkið er með allt aðra samsetningu á sínum útgjöldum heldur en heimili eru með.