157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:55]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Það sem mig langar að fókusera á í fyrri fyrirspurn er tenging þess sem gerist á þessu ári við fjármálaáætlun næsta árs. Í fyrsta lagi langar mig að spyrja: Hvaða áhrif mun 3,5 milljarða kr. lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hafa á stöðugleikaregluna annars vegar á þessu ári og hins vegar á því næsta að öðru óbreyttu? Miðað við hvað stöðugleikareglan stóð tæpt í fjárlagafrumvarpinu, má ekki áætla að ríkissjóður standist ekki viðmið stöðugleikareglunnar á þessu ári? Hvaða upplýsingar hefur hæstv. ráðherra frá skrifstofu opinberra fjármála þegar kemur að því hvort útlit sé fyrir að ríkissjóður verði innan viðmiða stöðugleikareglunnar í árslok?

Í öðru lagi: Eru tekjur ríkissjóðs vegna nýrra skattahækkana sem tóku gildi 1. janúar á þessu ári að skila sér í ríkissjóð á fyrsta ársfjórðungi nokkurn veginn eins og hæstv. ráðherra gerði ráð fyrir? Ef ekki, eru þær hærri eða lægri? Kemur til greina af hálfu hæstv. ráðherra að hækka skatta enn frekar á þessu ári eða getum við treyst því að þrátt fyrir mögulega minni tekjur ríkissjóðs á þessu ári verði gripið til hagræðingar fremur en frekari skatta- eða gjaldahækkana?

Nú eru þetta orðnar nokkuð margar spurningar en af því að hæstv. ráðherra kom hér inn á það að eitthvað eins og að finna olíu gæti verið stórkostlegt, ef ég skil hann rétt, þá langar mig að spyrja: Styður hæstv. efnahags- og fjármálaráðherra leit að olíu og gasi eða kolefnum við strendur Íslands ef áhugi væri fyrir því?