157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:58]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er gott að heyra, það var nú nokkuð jákvæður punktur sem og að það yrði sett í forgang að hagræða frekar en að fara í frekari skattahækkanir. Hins vegar vil ég minna hæstv. ráðherra á það að ríkið setur fjölmargar kvaðir á fyrirtæki um upplýsingar innan ársins og mér finnst að ríkisstjórnin mætti ganga á undan með góðu fordæmi og reyna að hafa áætlanir sínar þannig að ekki bara þingmenn heldur almenningur geti fylgst með stöðu ríkisfjármála innan ársins og það er verkefni sem sum lönd hafa gengið langt með og er til fyrirmyndar.

Hæstv. ráðherra verður tíðrætt um að stjórnarandstaðan eigi til að misskilja hann. Nú er það svo að það hljómar eins og hann sé með tvær fjármálaáætlanir, annars vegar áætlun þar sem talað er til hægri vængsins en þá eru aðhaldssöm fjárlög boðuð, útgjaldaaukning ekkert til að tala um og ekki minnst á skatta. Hins vegar er það fjármálaáætlun sem við heyrum kynnta fyrir vinstri vængnum. Þá er umræðan fyrirferðarmikil um að þjónustan aukist, útgjöld til ýmissa málaflokka aukist og skattahækkanir á vondu bankana, baðlónin og alla hina sem er talið að hagnist of mikið. Nú á ég erfitt með að sjá hljóð og mynd fara saman. Það sem ég sé í þessari fjármálaáætlun er fyrst og fremst aukin útgjöld, fjármögnuð með frekari skattheimtu. Því vil ég leyfa hæstv. ráðherra og háskólakennaranum að blómstra og fara yfir hans sýn á málin og hvort ég sé að misskilja þetta. Eru skattar ekki að hækka til að ríkissjóður verði hallalaus þrátt fyrir aukin útgjöld? Reyndar eiga báðar fjármálaáætlanirnar það sammerkt að gera ráð fyrir bjartsýnni spá um hagvöxt og framleiðnivöxt. Hvað gerist ef hún stenst ekki? Erum við þá ekki með allt of há útgjöld á alla mælikvarða? Hallalaus fjárlög myndu ekki standast og ástandið væri ekki harla gott. Hvernig myndi háskólaprófessorinn bregðast við slíkri sviðsmynd?