157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir aðra sendingu af góðum spurningum. Nú myndi ég alltaf leggja áherslu á það, óháð því hvort við erum til hægri eða vinstri, að þið horfið á tölurnar. Þær vantar nú ekki í ritið sem hér er til umfjöllunar, þ.e. fjármálaáætlunina. Það sem hún sýnir glöggast er hvernig þróun ríkisútgjalda og tekna ríkisins er. Tekjur ríkisins lækka lítillega á tímabilinu en ríkisútgjöld lækka umtalsvert. Það er þannig sem afgangurinn verður til sem síðan er notaður til að lækka skuldir. Ég held að það sé á endanum alltaf þannig, og ég hef tekið það fram hér áður í þessum ræðustól, að það er ekki eins langt á milli stjórnmálaflokkanna á Íslandi eins og við gætum oft haldið. Ætli við séum ekki sammála um næstum því allt og öll erum við pínulítið til hægri og pínulítið til vinstri að því leyti að það má ætla að hér sé full samstaða um að hér eigi að vera velferðarkerfi, að hér viðhöldum við ákveðnum grundvallarkerfum eins og heilbrigðiskerfinu, hér sé öryggi borgaranna tryggt og að skatttekjur ríkisins séu ekki meiri en svo að þær dugi fyrir þessum útgjöldum og skerði ekki verulega hag fyrirtækjanna í landinu sem skapa grunninn fyrir hagkerfið okkar.

Varðandi spár um hagvöxt þá er þingheimi fullkomlega ljóst að þessi fjármálaáætlun byggir á þjóðhagslíkani Seðlabankans sem er besta mögulega spá sem til er. Fari svo að hér ríði yfir áföll þá þurfum við að takast á við þau þegar þau gerast, en hingað til, þrátt fyrir að ýmis áföll hafi riðið yfir, svo sem eins og fall flugfélags, lokun kísilverksmiðju og lokanir hjá álveri, þá hafa áætlanirnar gengið þannig eftir eða nægilega vel eftir til þess að ekki hefur þurft að bregðast við með einhvers konar meiri háttar útgjaldaaukningu ríkisins. (Forseti hringir.) Þvert á móti, eins og fjármálaáætlunin sýnir, er áherslan enn þá á að ríkið dragi úr umsvifum sínum og leiði til verðlagsstöðugleika.