157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:03]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra nokkurra spurninga. Við sem hér erum inni og ráðherra þekkjum manna best og vitum tilgang fjármálaáætlunar — hún er leiðarstefið okkar næstu fimm árin. En það sem mig langar aðeins að fara í eru forsendurnar, virðulegur forseti. Áætlunin byggist náttúrlega á forsendum og þróun efnahagsmála, m.a. fyrir árið 2026. Þar erum við enn þá bara í mótun, ef svo má að orði komast, og margt óljóst og mikil óvissa og meiri óvissa en hefur verið oft áður. Við erum í óvissu m.a. um verðbólgu, hvort hún haldi áfram að hjaðna eða hvort hún festist á hærra stigi. Við vitum ekki hvort kjarasamningar munu halda ef við fáum nýjan launaþrýsting með tilheyrandi áhrifum á verðlag og vexti, gríðarlega stórt mál sem mun skipta verulegu máli inn í fjármál ríkisins á einmitt áætlunartímabili þessarar fjármálaáætlunar sem við ræðum núna. Við höfum ekki hugmynd um hvernig alþjóðlegar aðstæður munu þróast. Þá er ég að tala um óvissu á mörkuðum sem mun að öllum líkindum aukast eða jafnvel minnka en maður hefur áhyggjur af því að þetta sé frekar að færast í aukana. Síðan er ekki hægt að líta fram hjá því að auðvitað er óvissuþáttur varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um Evrópusambandið. Niðurstaðan í þeirri atkvæðagreiðslu mun hafa áhrif á væntingar, fjárfestingu og gjaldmiðil.

Ég spyr því í þessu ljósi hvort hæstv. ráðherra hafi raunverulega trú á því að fjármálaáætlun sem byggist á svo óljósum forsendum geti notið trúverðugleika, og hvað getum við gert hér í þinginu til þess að reyna að auka þennan trúverðugleika?