157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:16]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held þá áfram með þennan hluta máls. Ég ætlaði svo sem að fara í aðrar spurningar hér en það vill svo til að sá sem hér stendur sat í velferðarnefnd síðastliðið vor og kom raunar með þessar spurningar til fjármálaráðuneytisins sem snúa að launavísitölu almannatrygginga og hvaða áhrif það myndi hafa. Ef ég man rétt var svarið sem kom frá fjármálaráðuneytinu, og var miðað við frá 1997, að það sem hefur farið inn í almannatryggingarnar, þær hafa raunverulega hækkað 18% umfram launavísitölu á því tímabili. Það sem er hins vegar lykilatriði í þessu er að þingið og fjárveitingavaldið hafa fylgt þeim hagsveiflum og fylgt þeim meira inn í þetta dæmi. Það sem er hins vegar verið að vara við varðandi launavísitölumálið er að setja ekki 15–20%, eða hvað það er mikið, af fjárlögum ríkisins á sjálfstýringu. Um það snýst gagnrýnin og hefur snúist um í rúmt ár, eða heilt ár að minnsta kosti, svo þessu sé algerlega haldið til haga fyrst svo sé.

Síðan vildi ég rétt koma inn á samkeppnishæfni atvinnugreinanna og annað. Nú er boðuð hækkun virðisaukaskatts úr 11% í 24% á baðlón sem hefur mikil áhrif í kjördæmi þess sem hér stendur þar sem eru fjögur baðlón sem falla undir þetta. Baðlónin eru raunverulega stór hluti og mikilvægur ferðamannasegull í ferðaþjónustunni á Íslandi, en þá gleymist oft að t.d. í Norðausturkjördæmi eru kannski 30–40%, eða jafnvel 50%, gestanna Íslendingar. Þetta er ekki bara virðisaukaskattshækkun á erlenda ferðamenn, eins og stundum er látið hljóma, heldur hefur þetta mikil áhrif á okkur Íslendinga sem búum á þessu svæði. Er að vænta, í næstu skrefum varðandi fjármálaáætlun, frekari skattheimtu á ferðaþjónustuna á næstu misserum (Forseti hringir.) en er boðað með einhverjum hætti í þessari fjármálaáætlun? Ég hef ekki tíma fyrir bankaskattinn og fleira.