157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:18]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna. Nú er það auðvitað þannig að laun fylgja líka hagsveiflunni. Launaþróun fylgir hagsveiflunni, laun hækka hraðar þegar það er þensla heldur en þegar það er samdráttur, þannig að að einhverju leyti er um sjálfkrafa leiðréttingu fyrir hagsveiflu að ræða.

Varðandi breytingar á virðisaukaskattskerfinu þá er þessi undanþága baðlóna nokkuð sérstök, á sér ekki hliðstæður og það er alltaf kostnaður sem fylgir því að vera með flókið virðisaukaskattskerfi. Það hefur því miður, frá því það var góðu heilli tekið upp á tíunda áratugnum, flækst með hverju árinu. Það er auðvitað alltaf sársaukafullt að taka það til einföldunar vegna þess að iðulega er um undanþágur frá því að ræða. En ef kerfið á að virka eins og ætlast var til og gæta á allrar sanngirni þá er eðlilegt að undanþágur séu fáar og vandlega rökstuddar. Þar fyrir utan eru engar aðrar áætlanir en þær sem þegar hafa verið ítrekað kynntar af ríkisstjórninni sem felast í upptöku einhvers konar almennrar gjaldtöku þar sem markmiðið er að stýra með betri hætti flæði ferðamanna bæði í tíma og rúmi um landið til að nýta betur þá innviði sem ferðaþjónustan býr við.