157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna en það verður að segjast eins og er að bæði framsagan og þá sérstaklega svör við athugasemdum valda mér miklum áhyggjum. Við nefnilega erum hérna með lög um opinber fjármál. Það tók tíu ár að undirbúa þau og það var gert í fullkominni pólitískri sátt. Það fyrsta sem hæstv. ríkisstjórn gerði var að brjóta lögin og fjármálaráð benti á það. Fjármálaráð er til þess að koma með athugasemdir, rýna áætlunina, til þess að ríkisstjórn og þingheimur geti lagað það sem þarf að laga. Það er alltaf mikilvægt en það er sérstaklega mikilvægt núna, virðulegi forseti, vegna þess að eins og er síendurtekið í álitsgerð fjármálaráðs þá eru það ríkisfjármálin sem hafa mest um það að segja hvort það verði verðbólga í landinu. Það eru ríkisfjármálin. Þið tókuð eftir því að hæstv. ráðherra talaði eins og álitsgerð fjármálaráðs væri nú bara eitthvað sem skipti engu sérstöku máli, hann hefði oft séð svona alls konar. Með leyfi forseta ætla ég að lesa beint upp úr álitsgerðinni það sem er tekið út af fjármálaráði, helstu athugasemdirnar. Hefst nú lesturinn, með leyfi forseta, og fyrst er það jákvæður punktur:

1. „Ekki hvikað frá markmiði um hallalaus fjárlög.“ Það er að vísu tilgreint að þetta sé næfurþunnt eins og hér hefur komið fram, að það sé gert ráð fyrir milljarða króna afgangi á næsta ári. Að öllu óbreyttu mun það aldrei ganga eftir.

2. „Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála.

3. Vísitölutenging almannatrygginga kallar á endurskoðun útgjaldahámarks.

4. Framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu.

5. Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika.

6. Óljóst hvers vegna búast megi við viðsnúningi í þróun framleiðni.

7. Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.

8. Tilhneiging til víðtækra aðgerða við sértækum vanda grefur undan skilvirkni og sjálfbærni.

9. Lækkun skuldahlutfalls byggir á bjartsýnum forsendum um hagvöxt.

10. Afkomubati er hægfara og háður mikilli óvissu.

11. Varhugavert er að treysta á hagfelldar efnahagsforsendur.

12. Skortur á gagnsæi um forsendur launa- og verðlagsþróunar draga úr trúverðugleika.

13. Endurlánum fylgir freistnivandi.

14. Mikil og falin áhætta getur verið fólgin í stofnun innviðafélags.“

Virðulegi forseti. Þetta eru ekki mín orð. Þetta eru ekki orð stjórnarandstöðunnar. Þetta eru ekki orð pólitískra andstæðinga ríkisstjórnarinnar. Þetta er faglegt álit fjármálaráðs — faglegt álit fjármálaráðs.

Virðulegur forseti. Það væri auðvitað eitthvað að ef það kæmi einhvern tímann álitsgerð frá fjármálaráði sem kæmi ekki með athugasemdir, þá væri eitthvað að fjármálaráði. Auðvitað kemur fjármálaráð með athugasemdir og auðvitað mun aldrei koma hin fullkomna fjármálaáætlun. En, virðulegi forseti, þessar athugasemdir eru þess eðlis að við hljótum að bregðast við þeim. Og að hlusta hér á hæstv. ráðherra, sem enn og aftur er horfinn úr salnum þegar verið er að ræða mál sem honum tengjast, að hann komi hér upp og tali eins og þetta skipti engu máli — það er algerlega skýrt hjá honum að það á ekkert að fara eftir þessu, ekki einu. Ég spurði hæstv. ráðherra hvort það ætti að taka eitthvert tillit til þessa og nefndi kannski þau atriði sem hafa mest áhrif á verðbólguvæntingar því að það er aftur og aftur bent á hið augljósa, að rannsóknir sýna að það eru ríkisfjármálin sem bera mesta ábyrgð þegar kemur að verðbólgunni, ekki Seðlabankinn heldur ríkisfjármálin. Svar hæstv. ráðherra var bara að þetta skipti engu máli. Hæstv. ráðherra hafði tækifæri bæði í svörum við mínum andsvörum og í svörum til hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar til að segja það skýrt að auðvitað yrði þetta skoðað og nefna einhver dæmi. En svo er ekki. Hæstv. ríkisstjórn hefur tekist á ógnarskömmum tíma að gera mikil hagstjórnarmistök. Við þekkjum þetta með skatta- og gjaldahækkanirnar þar sem allir sögðu sem það skoðuðu: Þetta mun leiða til verðbólgu. Allir sérfræðingar. En það var ekkert gert með þetta. Og hvað gerðist? Jú, það kom verðbólguskot vegna skatta- og gjaldahækkana ríkisstjórnarinnar.

Hér er bara hreint og klárt sagt: Þetta er allt of bjartsýnt. Það liggur alveg fyrir að þessi svokallaða stöðugleikaregla, sem þeir gagnrýndu þótt þeir fögnuðu því að hún kæmi, sem er útgjaldaregla, að þið verðið að endurskoða hana vegna þess að það fer ekki saman að segjast vera með aga og lögsetja sjálfvirk útgjöld. Og hæstv. ráðherra ætlar ekki að gera neitt með þetta, ekki neitt. Hann ætlar ekki einu sinni að taka þátt í umræðunni, nema þá kannski á kaffistofunni.

Virðulegi forseti. Það var mikið lagt í að setja lög um opinber fjármál. Skoðað var allt það besta sem gerist í öðrum löndum. Það var spurt og ráðleggingar fengnar frá alþjóðastofnunum, frá Norðurlöndunum, vegna þess að við vildum setja markið hátt og gera betur. Ríkisstjórnin byrjaði á því að brjóta þau lög, eins og við þekkjum, og núna þegar fjármálaráð kemur með mjög alvarlegar athugasemdir segja menn: Það skiptir engu máli. Við ætlum ekki einu sinni að taka þátt í umræðunni. Okkur gæti ekki verið meira sama. Þetta hefur nú bara áhrif á kjör almennings og verðbólguna sem kemur verst niður á þeim sem minnst hafa, og það eru bara ekki áhyggjur ríkisstjórnarinnar.

Virðulegur forseti. Það er stuttur ræðutími og það er slæmt því að í rauninni ættum við að hafa hann tvöfaldan þegar við erum að ræða svona alvarleg mál. Það að koma með slæma fjármálaáætlun, eins og þessi ríkisstjórn gerir, er slæmt. En það að gera ekkert með athugasemdir þeirra sérfræðinga sem eiga að gagnrýna áætlunina, og hafa svo sannarlega gert það, er enn þá alvarlegra. Hverjir munu borga brúsann fyrir þessi vinnubrögð? Hverjir? Almenningur, fjölskyldurnar í landinu.

Mér finnst algerlega fyrir neðan allar hellur, virðulegi forseti, að ráðherra ákveði að taka ekki þátt í umræðunni nema kannski undir lokin og að svara ekki með málefnalegum hætti þeim ábendingum sem koma frá fjármálaráði. Ég er ekkert farinn að fara í pólitískar áherslur okkar hér. Ég er bara í þessari stuttu ræðu að vekja athygli á álitsgerð fjármálaráðs og reyna að fá svör frá hæstv. ríkisstjórn við því hvort það sé virkilega svo, eins og kom fram hér í andsvörum, að það eigi ekkert, virðulegur forseti, ekkert að gera með þessar faglegu athugasemdir fjármálaráðs.