fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Það var einkennilegt að hlusta hér á ræðu hv. þingmanns og sérstaklega virtist glitta í ákveðna reiði gagnvart því að ríkisstjórnin ætli að ná fram markmiði sínu. Mér finnst það hálfeinkennilegt en auðvitað eru það vonbrigði fyrir viðkomandi hv. þingmann, sem sat í ríkisstjórn sem skilaði halla nánast hvert og eitt einasta ár, að hér sé komin ríkisstjórn sem ætli að láta enda ná saman. Auðvitað munum við fara yfir þessar ágætu athugasemdir frá fjármálaráðaráði en varla hægt að tala um að þetta sé einhver gríðarlegur áfellisdómur hvað varðar vísitölutengingu fyrir lífeyrisþega til að koma í veg fyrir kjaragliðnun. Það er algerlega þekkt að það eru jafnvel samningar sem fráfarandi ríkisstjórn gerði, t.d. um búvörusamninga þar sem voru 20 milljarðar eða hátt í það vísitölutryggðir og síðasta ríkisstjórn, sem blessunarlega fór frá í lok árs 2024, gerði samninga við lækna á LSH og á Akureyri sem nema miklu hærri upphæð og eru kostnaðarsamari en þessi vísitölubinding sem er rætt hér um og hv. þingmaður gerir mikið úr. Ég held að þessi vonbrigði sem komu fram í ræðu hv. þingmanns lýsi að einhverju leyti því að hafa ekki náð því fram sem þessi ríkisstjórn mun gera, þ.e. að ná fram hallalausum fjárlögum, ná fram árangri í ríkisfjármálunum og ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður noti nú hér andsvar sitt til að samgleðjast ríkisstjórninni og þingheimi yfir þeim árangri sem er ljóst að við munum ná.