157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:36]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það er nú auðvitað þannig að ég hlusta á hv. þingmann og ég vil segja að helstu ábendingar og ályktanir fjármálaráðs eru auðvitað bara eðlileg varnaðarorð sem er tekið tillit til og auðvitað munum við gera það. Fleira sem er rétt að gera í áframhaldi af þessari vinnu er þá að fara yfir framfylgd fjárlaga á síðustu árum og nota það í þeirri vinnu sem er fram undan. Þetta er góð og vel unnin fjármálaáætlun sem ég tel að hv. þingmaður ætti miklu frekar að fagna í stað þess að vera hér, vil ég segja, einfaldlega að rangtúlka eðlileg varnaðarorð sem liggja fyrir. Mér finnst það kannski vera málið í þessu. (Forseti hringir.) Við erum á tímamótum. Við erum á tímamótum þess að snúa við hallarekstri liðinna ára í afgang og ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður geti fagnað með okkur í því.