fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Þetta var áhugavert andsvar. Hvernig er hægt að rangtúlka það þegar maður les beint upp úr textanum? Hvernig er það hægt? Ég las beint upp úr álitsgerðinni. Hvers konar rangtúlkun er það? (SigurjÞ: Oftúlkun.) Hv. þingmaður kallar fram í að það sé ekki rangtúlkun heldur oftúlkun. Ég las orðrétt upp úr álitsgerðinni og það fer úr því að að verða rangtúlkun í oftúlkun. Ja, lestrarkunnátta er kannski eitthvað verri heldur en við ætluðum en ég lærði það alla vega í grunnskóla, og ég fékk fína kennslu þótt ég segi sjálfur frá, að ef þú lest beint upp þá er það ekki túlkun, þú ert bara að lesa beint upp úr texta og það er það sem ég gerði. Hv. þingmaður segir að þetta sé eðlilegt og það verði tekið tillit til þess. Allt í lagi, gott og vel. Hvernig ætlið þið að taka tillit til þess? (Forseti hringir.) Við hljótum að fá að vita það í þessari umræðu því að hæstv. ráðherra afgreiddi þetta eins og þetta skipti engu máli og ætlaði ekki að taka neitt tillit til þess. (Forseti hringir.) En ég bíð spenntur eftir ræðu hv. þingmanns, formanns fjárlaganefndar, þar sem hann fer yfir það hvernig á að taka tillit til álitsgerðar fjármálaráðs.