157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:39]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni kærlega fyrir hans ræðu þó að ég sé ósammála inntakinu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég heyri hv. þingmann fullyrða að hér sé á ferðinni brot á lögum um opinber fjármál. Ég væri til í að heyra frá hv. þingmanni hvaða brot á lögum um opinber fjármál hann er að tala um því að ég, eins og hann, hef lesið álit fjármálaráðs og ég sé ekki að það eigi við nein rök að styðjast og mér finnst mjög alvarlegt ef menn eru að halda því fram að hér sé verið að brjóta lög. Í áliti fjármálaráðs kemur fram, með leyfi forseta:

„Fjármálaráð staðfestir að framlögð fjármálaáætlun er í samræmi við gildandi fjármálastefnu og gangi forsendur og áætlanir eftir verður stöðugleikaregla uppfyllt og skuldaþróun í samræmi við áform stjórnvalda.“

Eins og hæstv. ráðherra kom jafnframt inn á í sinni framsögu er ekki allt 2% svigrúmið uppfyllt í stöðugleikareglunni á tímabili fjármálaáætlunar þannig að það er alveg tilefni til að taka þær ábendingar fjármálaráðs alvarlega þegar kemur að því hvort það þurfi að taka til endurskoðunar með lækkun á útgjaldaþakinu. Það er alveg svigrúm til þess, enda er ekki verið að fullnýta þetta 2% svigrúm.

Síðan kemur fram, svo ég lesi aftur úr áliti fjármálaráðs, í lokaorðunum, með leyfi forseta:

„Fjármálaráð telur það fagnaðarefni að stefnt sé að hallalausum fjárlögum á næsta ári og að áætlað sé að skila afgangi af rekstri ríkisins yfir allt tímabil áætlunarinnar. Slík þróun myndi marka mikilvægt skref í átt að sterkari stöðu opinberra fjármála.“

En ég væri til í að heyra frá hv. þingmanni varðandi brot á lögum um opinber fjármál.