fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég hef þá misskilið hv. þingmann. Ég skildi sem svo að hann væri að fullyrða að í fjármálaáætluninni sem hér um ræðir fælist brot á lögum um opinber fjármál. Ég ætla ekki að dvelja of lengi við árið í fyrra en mér þótti þetta áhugaverð framsetning hjá hv. þingmanni að það væri hlutverk fjármálaráðherra að bregðast við áliti fjármálaráðs. Fjármálaráðherra leggur fram fjármálaáætlun til þingsins og við fáum álit fjármálaráðs væntanlega fyrir okkur til að taka með í nefndarvinnuna sem fram undan er.
Ég ætla að fá að lesa úr áliti fjármálaráðs um fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028. Þar kom fram, með leyfi forseta:
„Forðast ætti hallarekstur við núverandi efnahagsaðstæður.
Við ástand þenslu í efnahagsmálum er erfitt að rökstyðja að hið opinbera sé rekið með halla þar sem slíkt ýtir undir þenslu, hefur neikvæð áhrif á viðskiptajöfnuð og dregur úr svigrúmi til að mæta áföllum í framtíðinni.“
Ég spyr hv. þingmann: Var tekið tillit til þessa álits fjármálaráðs við vinnslu fjármálaáætlunar 2024–2028 þar sem skila átti halla allt tímabilið?