fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum ágæta ræðu sem fór að mestu í að fara yfir ábendingar fjármálaráðs til fjárlaganefndar sem verður bara ágætt og gott verkefni að fara yfir eins og í fyrra þegar svipað var viðhaft. Ég ætla kannski aðeins að höggva í sama knérunn. Mér finnst þingmaðurinn helst til dramatískur yfir þessum ábendingum, eins ágætar og þær eru. Ef við speglum þær bara í ábendingum ársins á undan þá eru þarna viðbótarábendingar varðandi stöðugleikaregluna sem fjármálaráð fagnaði. Þarna eru viðbótarábendingar varðandi innviðafélag og nýjar leiðir til að fjármagna samgönguinnviði sem fjármálaráð fagnaði. Við eigum ekki að vera í það mikilli vörn að við þurfum að vera að fyrtast við að fá einhverjar faglegar ábendingar varðandi útfærslu á einstökum þáttum sem er bara eðlilegt að fara yfir og er hluti af því að vanda til verka. Megintíðindin í þessari fjármálaáætlun eru auðvitað skýr; hallalaus fjárlög á næsta ári, ekki fullnýting á stöðugleikareglunni, ábyrgð í fjármálum og ákveðinn fyrirsjáanleiki. Frá 2019 var uppsafnaður halli ríkissjóðs 830 milljarðar. Ég saknaði þess að ekki væri varið í það einu einasta orði að fagna þessum tímamótum sem eru auðvitað stór. Kannski eigum við að líta á það sem sameiginlegt verkefni þessa árs að láta það ganga eftir í fjárlögum haustsins vegna þess að eins og við vitum, og gildir út af fyrir sig á hverjum tíma, þá er ýmislegt sem hefur áhrif á efnahagsmálin, ytri þættir og innri. Það er sameiginlegt verkefni að metnaður nýrrar ríkisstjórnar nái fram að ganga.