fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég get í sjálfu sér verið sammála hv. þingmanni: Fjármálaáætlun verður að vera traust. En fjármálaráð er að benda á að svo sé ekki. Fjármálaráð bendir á að hún sé ekki nægilega trúverðug eða varfærin og að það þurfi skýra forgangsröðun, meira gagnsæi og raunverulegar aðgerðir til að styrkja sjálfbærni ríkisfjármála. Hagræðingin er lítil og óútfærð og nýtt í önnur útgjöld. Það er jákvætt að ætla sér að ná hallalausum fjárlögum, án nokkurs vafa, en fjármálaráð bendir á að það sé ekki nóg. Ég skil ekki alveg þessa hv. stjórnarþingmenn. Nú er að vísu kominn hv. stjórnarþingmaður sem er ekki að gagnrýna mig fyrir að lesa upp úr álitsgerð fjármálaráðs en fram til þessa hef ég verið gagnrýndur fyrir það. Ég bíð spenntur eftir því hvernig stjórnarliðar — og til þess er þessi umræða. Hún er ekki bara til þess að við horfum hvert á annað — nei, nú getum við horft á hæstv. fjármálaráðherra (Forseti hringir.) af því að hann er kominn í hliðarherbergi. Þetta er til að fara yfir fjármálaáætlunina (Forseti hringir.) og ekki síst álitsgerð fjármálaráðs.