157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[14:54]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska fjármálaráðherra til hamingju með fjármálaáætlun og góða yfirferð yfir hana hér í framsöguræðu sinni og lýsa tilhlökkun til að fá þá yfirsýn sem yfirferð yfir fjármálaáætlun gefur hér í þingsal og í kjölfarið í fjárlaganefnd. Það sem er fram undan eru auðvitað snjallar ræður nefndarmanna og almennra þingmanna um fjármálaáætlunina en síðan kemur hver ráðherrann á fætur öðrum og fer yfir sinn málaflokk. Það, eins og umræða um fjárlög, gefur innsýn í hin breiðu viðfangsefni sem eru í ríkisfjármálunum og ríkisrekstrinum.

Það má kannski segja að kynningin á fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 hafi að einhverju leyti fallið í skuggann af fréttum af viðvarandi verðbólgu en það dylst engum sem fer yfir hana og niðurstöður hennar að hún felur engu að síður í sér góð tíðindi. Hallarekstur ríkissjóðs er stöðvaður, lagður er grunnur að nýju hagvaxtarskeiði með umbótum og fjárfestingum með nýjum leiðum, aðhald er umtalsvert en þó skynsamlegt og áherslan er á heilbrigðismál, kjör aldraðra og öryrkja, nýsköpun og þróun mála í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar. Næstu fjárlög verða þau fyrstu frá 2019 sem verða hallalaus. Þetta eru auðvitað tímamót og ástæðulaust er af stjórnarandstöðunni að gera lítið úr þeim. Á þeim árum sem liðin eru frá 2019 hefur uppsafnaður halli verið 830 milljarðar hjá ríkissjóði, hvorki meira né minna, en það er sjálfsagt að halda því til haga að fyrri ríkisstjórn ætlaði sér að skila hallalaust til lengri tíma litið. Það sem núverandi stjórnarmeirihluti er að gera er að snúa halla í afgang ári fyrr en áætlað var.

Ég held að það sé líka alveg rétt að gæta sanngirni varðandi það að auðvitað var við ýmislegt að eiga, eins og fall WOW, Covid og eldana sem hafa brunnið á Reykjanesi og við Grindavík. Það er engu að síður bara sagnfræðileg staðreynd að hallareksturinn byrjaði áður en þessi stóru og illvígu viðfangsefni skullu á eða árið 2019. Ég held að við getum kannski lagt til hliðar þrætubók um þá meginstaðreynd að það er mikilvægt, ekki síst þegar verið er að kljást við verðbólgu og háa vexti, að fjármálaáætlun sé með þessu móti; í fyrsta lagi boðað hallaleysi, að rétta við afkomuna, og síðan það aðhald sem birtist í því að það er ekki verið að fullnýta svigrúmið sem stöðugleikareglan leyfir.

Á því eina ári sem liðið er síðan ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við höfum við líka séð umtalsverða lækkun skulda ríkisins samkvæmt alþjóðlegum mælikvarða þar sem skuldir ríkja eru metnar. Þegar ríkisstjórnin tók við voru þær, eins og sést í síðustu fjármálaáætlun, um 59,3% en eru núna allt að 6% lægri. Það er auðvitað vegna sölu á Íslandsbanka annars vegar og hins vegar uppgjöri vegna ÍL-sjóðs. Nákvæmar tölur munum við án efa fara yfir í fjárlaganefnd og birta með í nefndarálitinu eins og gert var í fyrra. En það er fróðlegt að bera saman skuldahlutföll Íslands miðað við önnur lönd. Þrátt fyrir þau áföll sem við höfum verið að takast á við undanfarin ár er skuldastaðan fyrir neðan hið alþjóðlega viðmið, 60%, raunar fyrir ofan flest hinna Norðurlandanna ef frá er talið Finnland sem er nokkuð fyrir ofan og hefur ekki notið nálægðar við Rússland undanfarin ár, svo vægt sé til orða tekið, heldur hefur það haft mikil áhrif á efnahag í Finnlandi sem áður hafði lagt áherslu á að rækta frekar en hitt viðskipti við Rússland til að reyna að stuðla að friði í þeim heimshluta, sem mistókst hrapallega. En það er alls ekki á reikning Finna, þvert á móti. Við sjáum hins vegar að lönd eins og Bretland, Frakkland, og sérstaklega Bandaríkin og Ítalía, eru með umtalsvert hærri skuldir. Bandaríkin eru með tvöfalt hærra hlutfall af landsframleiðslu en Ísland og Ítalía þar ögn fyrir ofan.

Þegar kemur að vaxtaútgjöldum hins vegar og vaxtahlutfalli hins opinbera af landsframleiðslu þá er það svo að þrátt fyrir að Ísland og Bandaríkin, og ekki síður Bandaríkin, séu með mjög mikla landsframleiðslu þá eru vaxtaútgjöld Íslendinga nánast jafn há og Bandaríkjamanna og Ítala en Finnar og aðrir eru með miklu lægra hlutfall af vaxtaútgjöldum. Það er vegna krónuvaxtanna, það er vegna krónuhagkerfisins og þetta er ein birtingarmynd þess sem almenningur og fyrirtækin í þessu landi eru auðvitað að glíma við. Eitt af því sem fjármálaráð sér ástæðu til að velta fyrir sér eru verðbólguvæntingar. Það verður áhugavert að ræða við fjármálaráð um það hugtak og þann viðvarandi vanda sem við er að etja á Íslandi. Þá er ég ekki bara að tala um síðustu ár eða einhverjar tilteknar ríkisstjórnir heldur erum við óánægð með verðbólguna eins og hún er núna en hún er reyndar mjög nálægt langtímameðaltali síðustu 20–30 ára. Stýrivextirnir, sem okkur finnst vera háir og við ætlum að lækka, eru mjög nálægt meðalstýrivöxtum síðustu 20–30 ára.

Fyrir þessu eru margar ástæður, eins og gengur, en það er ýmislegt sem gengur á líka í öðrum löndum. Við erum á öllum mælikvörðum með meiri og hærri og meiri viðvarandi verðbólgu og hærri vexti heldur en viðmiðunarlöndin. Það sést mjög skýrt þegar við berum saman muninn á verðbólgu og stýrivöxtum. Það er miklu minni munur. Við getum kallað það raunstýrivexti, sem þurfa greinilega að vera 2–3% hér á meðan þeir eru bara brot úr prósenti í flestum öðrum samanburðarlöndum. Þetta er gjaldið fyrir verðbólguvæntingar. Þetta er veruleiki sem ríkið glímir við, sveitarfélög glíma við og síðast en ekki síst heimili og fyrirtæki. Það er hluti af umgjörðinni sem við erum að fjalla um hér varðandi opinber fjármál. Það myndi auðvitað skipta mjög miklu máli ef þessari umgjörð væri hægt að breyta með upptöku nýs gjaldmiðils, en það er ekki meginefni þessarar ræðu.

Ég vil í raun vísa á frekari umfjöllun einstakra fagráðherra varðandi þróun útgjalda og aðhalds í einstaka málaflokkum en þar er býsna margt fróðlegt og mikilvægar áherslur sem birtast. Það er tvennt sem við þurfum auðvitað að ná utan um sem er ekki að fullu komið þarna inn; annars vegar eru það fjárfestingar og útgjöld til varnartengdra mála sem við sjáum fyrir okkur að muni aukast næstu tíu árin, eins og fjallað var um í nefndaráliti fjárlaganefndar á síðasta ári, og hins vegar eru það innviðafjárfestingarnar þar sem er verið að halda dampi og raunar bæta umtalsvert í, eins og í viðhaldi á vegum, sem er alveg sérstakt fagnaðarefni en auðvitað líka brýnt og löngu tímabært. Til viðbótar við það, í samspili við samgönguáætlun og stofnun boðaðs innviðafélags, er verið að leggja á ráðin um að stórauka innviðafjárfestingar í samgöngumannvirkjum með nýjum leiðum. Þetta er auðvitað eitt af því sem mun skipta miklu máli til að bæði efla hagvöxt með því að ráðast í fjárfestingarnar í sjálfu sér en ekki síður með því að leggja til samfélagsins hagkvæma og góða innviði og almenningssamgöngur sem munu nýtast samfélaginu vel til framtíðar.