fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka svarið. Þetta er kannski það sem ég hef áhyggjur af. Eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom inn á munu þessi framlög aukast á næstu tíu árum þannig að ég bendi kannski fjárlaganefnd á að hafa þetta sérstaklega í huga, að hafa þetta ekki fyrir utan stöðugleikaregluna af því að þetta er mögulega komið til að vera næstu árin og þá væri óheppilegt að þetta væri alveg fyrir utan.
Hins vegar langar mig að reyna að fá aðeins betur fram hverjar skattahækkanir næsta árs verða. Getur hv. þingmaður að einhverju leyti farið yfir hvar skattar muni hækka eða á hverju þeir muni helst lenda? Við vitum að það verða hækkaðir skattar á bifreiðar, hæstv. forsætisráðherra kom inn á það, og það liggur fyrir að það verði bankaskattur og baðlónaskattur. En þetta eru það miklar skattahækkanir að ég spyr: Hvar annars staðar á að taka þessa peninga af fólki?