157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:10]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir sína ræðu og vil líka þakka hv. þingmanni fyrir að fara kannski aðra leið í umfjöllun um fjármálaáætlanir og efnahagsmál eins og þau hafa staðið á fyrri árum og gangast við þeim áföllum sem hafa dunið á. Það var gaman að heyra það í ræðu þingmannsins því að margir samflokksmenn hans, því miður, vaða svona í öðrum polli í þessum pólitíska leik þegar að þessum málum kemur, þannig að ég var ánægður með þetta hjá hv. þingmanni.

Mér fannst áhugavert í ræðu hv. þingmanns þegar hann var að tala um verðbólguna, að hún væri, eins og ég skildi hann, bara á ágætum stað miðað við allt og allt. Markmiðin með fjármálaáætlun þessa sem er sett fram af hæstv. ráðherra eru náttúrlega að reyna að koma böndum á efnahagsmálin og þar með verðbólguna. Við vorum síðast í gær að ræða bráðabirgðaaðgerðir vegna verðbólgunnar varðandi vaskinn á bensíni sem er bara hið besta mál. En í upphafi skal endinn skoða og mig langar að spyrja hv. þingmann í ljósi stöðunnar núna og varnaðarorða allra sem (Forseti hringir.) kunna á reiknivél í desember í fjárlögunum: Voru aðgerðir ríkisstjórnarinnar bara mistök í ljósi þess hvar (Forseti hringir.) efnahagsmálin standa hvað varðar allar þessar gegndarlausu skattahækkanir?