157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:12]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hér er spurt um verðbólgu til langs tíma og ég var í ræðu minni að fjalla sérstaklega um verðbólguvæntingar. Ég er ekki ánægður með verðbólguna, ég vil að hún sé lægri og ég styð aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að lækka hana. Ég styð þess vegna fjármálaáætlun sem heildarsýn til næstu fimm ára til að styðja við það. En það þarf fleira til. Það er víða í raun, ef farið er yfir hvar verðbólga er að myndast, sem þarf að leggja gjörva hönd á þannig að samhent átak væri fagnaðarefni að mínu mati. Ég er nú gamall ævisöguritari Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, og þekki sögu þjóðarsáttarinnar býsna vel. Það þurfti margra áratuga óðaverðbólgu á köflum til að ná þeirri þjóðarsátt. Sú ríkisstjórn, líklega ein sú besta í sögu þjóðarinnar að mínu mati, var félagshyggjustjórn sem ekki bara náði þjóðarsátt heldur lagði grunn að uppbyggingu á hagvexti um land allt sem við njótum að mörgu leyti enn þá. Þjóðarsátt hefur því alltaf staðið mér býsna nærri hjarta, það að hafa samvinnu um slík mál er eðlilegt og gott og mér heyrist ríkisstjórnin vera að stíga góð skref í þeim efnum.