157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:13]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni kærlega fyrir svarið. Mig langar í seinna andsvari mínu aðeins að koma inn á náttúrlega stóran lið í þessu, gagnrýni fjármálaráðs, og spyrja hv. þingmann út í gagnrýnina á launavísitöluna því að hv. þingmaður var einn af fjölmörgum þingmönnum stjórnarliða sem tóku ekki mjög virkan þátt í þeirri umræðu. Nú kemur fram í umsögn fjármálaráðs að þarna er verið að tala um 15% á sjálfstýringu af 31% af heildarútgjöldunum sem hefur víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar hvað varðar efnahagsmálin. Það eru svakalega stór orð notuð þarna og það fer ekkert á milli mála að þau eru í takt við það sem var sagt hér af stjórnarandstöðu og ég veit ekki hversu mörgum hagfræðingum og sérfræðingum sem vöruðu við þessu frumvarpi um launavísitöluna. Hvað finnst hv. þingmanni um þessa umsögn og hversu svakalega neikvæð hún er og sérstaklega þessi orð, víðtækar og neikvæðar afleiðingar til lengri tíma?