157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:16]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Hins vegar koma orð hv. þingmanns um kjaragliðnunina svolítið á óvart því ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi kynnt sér álitsgerð fjármálaráðs. Þar kemur skýrt fram á bls. 18, í rammagrein 1, að meint kjaragliðnun eigi ekki við rök að styðjast. Þar er farið yfir þróunina m.a. með myndrænum hætti og hlutfall einstaklinga undir lágtekjumörkum eftir aldurshópum árið 2023. Þá var stærsti hlutinn 18–29 ára eða 12%, en 65 plús voru 4% og það er farið yfir að það sama eigi við um öryrkjana. Ég ítreka því spurningu hv. þm. Tómasar Þórs Þórðarsonar í ljósi þess að fjármálaráð bendir á að það sé ekki um kjaragliðnun að ræða, hvort hv. þingmaður sé enn þá stuðningsmaður þess að þessi leið sé farin og hvort hann geri þá ekkert með þessar athugasemdir fjármálaráðs hvað þetta varðar.

Sömuleiðis spyr ég hv. þingmann af því að hann talar um skuldir og mikilvægi þess að greiða þær niður, og ég fagna því, að það kemur fram í álitsgerðinni að það verður gert ráð fyrir neikvæðum lánsfjárjöfnuði á hverju ári áætlunarinnar. Með öðrum orðum, það þarf að taka meiri lán á hverju einasta ári sem er náttúrlega ákveðinn mælikvarði. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því. (Forseti hringir.)

(Forseti (BHar): Forseti biðst velvirðingar á klukkunni en ræðutími er sem sagt bara mínúta og hv. þingmaður hefur nýtt sína mínútu.)

Ég er farinn að gruna stjórnarmeirihlutann um samsæri þegar kemur að þessari klukku þegar ég er í ræðustól, en ég bið hv. þingmann að svara þessum spurningum um kjaragliðnunina og lánsfjárjöfnuðinn og hvaða athugasemdir fjármálaráðs hann telur vert að við skoðum.