157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:18]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þetta andsvar. Í fyrsta lagi finnst mér eðlilegt að við förum yfir allar ábendingar fjármálaráðs og gerum það vel og eins og þarf. Í öðru lagi hygg ég að það fari aðeins eftir því hvaða tímabil eru valin hvort það reiknist kjaragliðnun á vissum tímabilum en sú breyting sem var verið að gera núna var raunar ekki afturvirk heldur framvirk til að koma í veg fyrir frekari kjaragliðnun, en það er sjálfsagt að fara yfir gögn og útreikninga fjármálaráðs varðandi þetta.

Varðandi skuldir þá finnst mér eðlilegt að miða við hlutfall af landsframleiðslu vegna þess að ríkið ber auðvitað ábyrgð á því að byggja upp samfélag sem er í vexti og á meðan það þróast ekki á verri veg og umfram það sem við setjum okkur markmið um þá er ég sáttur við þessa skuldaþróun sem er jákvæð miðað við landsframleiðslu þó að það sé verið að taka lán. Það er að hluta til í áætlunum um lánsfjárjöfnuð verið að endurfjármagna eldri lán.