157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:26]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar og taka undir tvennt í því sem kom fram. Annars vegar þá er ég mikill áhugamaður um það að umræðan hér sé gagnadrifin og að þingmenn hafi sem best gögn og upplýsingar um allt sem þeir eru að fjalla um og er til í samstarf og að beita mér fyrir því eftir því sem við á. Ég hef reyndar bara ágæta reynslu af ráðuneytunum í því efni. En hitt, ef ég skildi þingmanninn rétt, þá finnst mér líka áhugavert að ræða grundvöll hagvaxtar, innviðauppbyggingu og aðra umgjörð sem styður við farsæld og velsæld í þessu landi og er auðvitað hin hliðin á peningnum sem við tölum kannski sjaldan um þegar við erum að tala um útgjöld og fjárfestingu. Ég er orðinn eindreginn áhugamaður um það, eftir að hafa verið hérna rúmt ár, að ríkið og ríkissjóður geri skýrari greinarmun á fjárfestingu og rekstri því að það að vera með eitt uppgjör í fjárlögum og annað í ríkisreikningi og svo þriðja á þjóðhagsgrunni (Forseti hringir.)í fjármálaáætlun er ekki til að auðvelda fólki að fylgja þræðinum, jafnvel ekki þingmönnum sjálfum heldur, fyrir utan að hitt er skýrara og sambærilegra fyrir sveitarfélög og fyrirtæki.