157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:28]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við fjöllum nú um fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir hans framsögu og fyrir þessa áætlun í heild sinni. Áætlunin hefur sætt þó nokkurri gagnrýni og mesta gagnrýnin hefur komið frá fjármálaráði sem er skipað af ráðherra sjálfum. Ráðherra skipar þrjá menn, yfirleitt hagfræðinga, í fjármálaráð. Í lögum um opinber fjármál er lögskipað að þetta ráð sem ráðherra skipar eigi að gefa sitt álit og gera álitsgerð um ýmsar stefnur stjórnvalda, þar á meðal fjármálaáætlun eins og hér er. Og hvað gerist, frú forseti? Það er ekki hægt að segja annað en að álitsgerð fjármálaráðs sé gífurlegur áfellisdómur fyrir þessa áætlun. Það er ekki hægt að segja annað. Þeir sem halda öðru fram eru annaðhvort að skrökva að sjálfum sér eða eru ekki læsir á þessa álitsgerð. Með þessari framlagningu áætlunarinnar um fjármál ríkisins næstu árin hefur ríkisstjórnin sýnt að henni er ekki alvara með að takast á við verðbólgu og vexti. Henni er hreinlega ekki alvara.

Frú forseti. Frumforsenda þess að árangur náist í þessum efnum er að ná tökum á ríkisfjármálunum. Hún er ekki að gera það. Ríkisstjórnin hefur ekki sýnt neina marktæka tilburði í þessa átt. Ríkisstjórnin sýnir vilja sinn í þessum efnum með því að auka ríkisútgjöld um 143 milljarða á milli ára. Þannig stendur ríkisstjórnin fyrir glórulausri aukningu ríkisútgjalda, hækkun þjónustugjalda og annarra skatta sem ýta undir verðbólgu og gerir stóran hluta ríkisfjármálanna sjálfvirkan og ósjálfbæran eins og allir helstu hagfræðingar og stofnanir hafa varað við. Hún gerir sem sagt þveröfugt við það sem góð hagstjórn mælir fyrir um. Henni er ekki alvara, frú forseti. Þetta er öll staðfestan í málinu. Það er engin staðfesta. Planið, frú forseti, er ónýtt af því að planið inniheldur ekki það sem nauðsynlegt er að gera, þetta er svo einfalt, til að leggja grunn að jafnvægi í þjóðarbúskapnum, ná tökum á verðbólgunni og halda vöxtum innan hóflegra marka. Verkin sýna merkin, frú forseti, og verkin sýna að aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru fremur fallnar til að fóðra verðbólguna en að ná tökum á henni. Ljótt er það, en þetta er staðreyndin. Þetta er það sem við erum að horfa á.

Frú forseti. Ég ætla aðeins að fara í það sem fjármálaráð hefur um þessa áætlun að segja. Ég sagði frá því í upphafi að fjármálaráð er lögbundinn umsagnaraðili sem er skipaður hagfræðingum af ráðherra sjálfum og verður að skila þessari álitsgerð sem það og gerði, sem er nokkuð stór að vöxtum, kannski einhverjar 40–50 bls., og þetta er samfelldur áfellisdómur. Hvað segir það á mannamáli? Tölum bara mannamál; falleinkunn, frú forseti. Skilaboð þess eru einföld, tvenn skilaboð: Nauðsynlegt er að sýna aga í ríkisfjármálum og hagstjórn ríkisins og í öðru lagi þurfa ýmsar efnahagslegar forsendur að standast. Það telur að:

„Sú víðtæka og sjálfvirka vísitölutenging almannatrygginga“ — í fyrsta lagi — „ sem nú hefur verið fest í lög felur í sér mikla hættu á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs.“

Þannig telur fjármálaráð þessa stefnu áhættusama og varar við víðtækum og langvarandi neikvæðum afleiðingum fyrir sjálfbærni og festu opinberra fjármála. Það eyðir miklum tíma í þetta atriði, þ.e. lögfestingu sjálfvirkra vísitölutenginga almannatrygginga. Fjármálaráð eyðir miklu púðri í að benda á að þetta valdi óróleika í ríkisfjármálum til langs tíma og óvissu. Þetta er kannski stærsta ábending þess. Ætla ég kannski ekki að lesa upp úr greinargerð ráðsins en það telur að:

„[…] að vísitölutenging almannatrygginga sé forsendubrestur sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks stöðugleikareglu til lækkunar.“

Stöðugleikaregluna sem stjórnarliðar hafa hér dásamað mánuðum saman. Forsendubrestur, frú forseti.

„Stöðugleikareglu er ætlað að tryggja að útgjöld hins opinbera vaxi ekki hraðar en hagkerfið til langs tíma. Stjórnvöld hafa valið að miða regluna við raunvöxt útgjalda sem þau mæla sjálf með mati á kostnaðarþróun eigin útgjalda. Sú aðferðafræði er hvorki skýr í lögum né gagnsæ og gerir eftirlit með stöðugleikareglu flókið. Um leið býður slíkur mælikvarði hættunni heim varðandi dulbúnar útgjaldaaukningar sem birtast þá sem verðhækkun fremur en raunvöxtur útgjalda.“ — O.s.frv.

Hvað þýðir þetta á mannamáli? Að stöðugleikareglan er ekki aðeins brostin, frú forseti, heldur hefur komið í ljós, með þessu áliti fjármálaráðs, að hún er byggð á sandi sem hæstv. ríkisstjórn hefur hlaðið undir hana. Sandi, frú forseti, sem stjórnvöld hafa skrapað að henni og mun skolast burt í fyrstu bleytum. Þetta er fjármálaráð, þetta er ekki ég. Fjármálaráð er að segja þetta. Þannig má skilja ábendingar fjármálaráðs. Og hvað gerir ríkisstjórnin? Ekkert.

Frú forseti. Fjármálaáætlun hæstv. ráðherra markast af góðum ásetningi, um það skal ekki efast. En auðvitað er ekki nægjanlegt að láta sig dreyma, sérstaklega þegar um fjármál ríkisins til langs tíma er að ræða. Einn draumurinn, frú forseti, er að fækka ríkisstarfsmönnum. Ekkert er fjallað um það hvernig það skuli framkvæmt. Á þetta bendir fjármálaráð, ekkert fjallað um hvernig á að framkvæma, ekkert. Annar draumurinn er að fara skuli í sértækar hagræðingaraðgerðir. Þar er heldur ekkert að finna um hvaða aðgerðir það séu eða hvar þeim eigi að beita eða hvenær, ekkert. Þriðji draumurinn er að fjármálaáætlun sé grundvölluð á hagspám sem byggja á forsendum um framleiðnivöxt. Þetta er ekki rökstutt með neinum gögnum og erfitt er að koma auga á hvað muni drífa þann vöxt. Engin gögn um þetta. Framleiðnivöxtur, ekkert. Bara draumfarir einhverra í stjórnarliðinu, frú forseti. Framleiðnivöxtur, engin rök. Draumur um aukna framleiðni. En hvað gerir ríkisstjórnin á meðan? Hún skattleggur atvinnulífið. Er það til að hvetja til aukinnar framleiðni? Nei.