157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:46]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir andsvar hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur. Varðandi það sem ég var að deila á: Ég var að deila á forsendurnar. Ég var að deila á forsendurnar sem liggja á bak við það að ríkisstjórnin ætlar að ná hallalausum fjárlögum; ég var að deila á forsendurnar, sem fjármálaráð gerir í mörgum liðum og löngum köflum. Ég nefndi og tiplaði örlítið á fækkun ríkisstarfsmanna, hvernig er það útfært? Fjármálaráð deilir á að það sé engin útfærsla á því. Það deilir á að það sé gert ráð fyrir framleiðnivexti. Hvernig má það vera? Hvernig er það rökstutt? Það vill meiri rökstuðning. Það er ekki verið að rökstyðja þetta. Menn dreymir bara, það var það sem ég var að segja í minni ræðu. Menn er bara að dreyma um framleiðnivöxt. Já, heyrðu, við sjáum fyrir okkur framleiðnivöxt og aukaskatttekjur og við getum skilað hallalausum fjárlögum. Þetta eru forsendurnar. Það þarf lítið að gerast til að breyta þeim þannig að við séum komin í halla. Það er þetta sem við erum að reyna að segja ykkur og við erum búin að gera það margsinnis síðustu mánuði.

Hvað myndi gerast ef við myndum ekkert gera? Þá væri þetta verra, segir hv. þingmaður. Í guðanna bænum, hv. þingmaður, ekki gera neitt. Íbúar þessa lands hafa fengið nóg af skattahækkunum. Ekki gera neitt. Ég bara bið þig, ekki meira. Haldið að ykkur höndum, þá held ég að okkur farnist aðeins betur.