fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir hans ræðu. Hv. þingmaður er nú einn af mínum allra uppáhaldsræðumönnum hér á þessu háa Alþingi og alltaf mjög ánægjulegt og upplýsandi að hlusta á hv. þingmann. Ég tek undir með hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur, mér þótti hv. þingmaður afar neikvæður og var að velta fyrir mér hvort hann væri að ræða sömu fjármálaáætlun og ég er búinn að vera að lesa og sömuleiðis álitsgerð fjármálaráðs. Ég get alls ekki tekið undir að álit fjármálaráðs sé falleinkunn. Auðvitað eru þetta mikilvægar ábendingar sem þarna koma fram og hv. þingmaður nefndi varðandi forsendur og eitthvað sem við þurfum að taka til skoðunar í meðferð nefndarinnar en mér finnst það ekki vera falleinkunn á sama mælikvarða og t.d. það sem ég las upp úr álitsgerð fjármálaráðs árið 2023 fyrir fjármálaáætlun 2024–2028 þar sem þau sögðu beint út að það væri ekkert tilefni til að reka ríkið með halla í því umhverfi sem var þá. Hér er aftur á móti verið að stöðva hallarekstur ríkisins, sem eru náttúrlega stóru tíðindin hér og eitthvað sem ég hefði vonað að hv. þingmaður myndi fagna.
Hv. þingmaður spurði um árangur. Við höfum t.d. séð söluna á Íslandsbanka og uppgjör ÍL-sjóðs. Þetta allt saman bætti skuldastöðu hins opinbera og eins og við sjáum líka í fjármálaáætluninni eru útgjöld ríkisins að minnka sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og tekjur ríkisins eru að minnka sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, þ.e. skattbyrðin er að minnka, hv. þingmaður. Er það ekki eitthvað sem hv. þingmaður getur tekið undir með mér að sé jákvætt?