fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir hans andsvar. Hvað sagði hv. þingmaður? Skattbyrðin er að minnka? Skattbyrðin er að minnka. Heldur hv. þingmaður virkilega, frú forseti, að fólk úti í samfélaginu telji að skattbyrðin sé að minnka? Nei, ég held ekki. Hvaðan hefur hann þessar upplýsingar? Það væri fróðlegt að heyra. Hvað varðar ríkisfjármálin, og ég er búinn að segja það nokkrum sinnum í ræðu, er þetta einfalt. Þetta er í sjálfu sér mjög einfalt. Vandamál ríkisfjármála er ekki tekjuhliðin, hv. þingmaður. Vandamál ríkisfjármála er útgjaldahliðin. Ég er búinn að benda á það í ræðu eftir ræðu að ríkisstjórnin á að einbeita sér — og nú tekur fjármálaráð heldur betur undir með þessum sjónarmiðum, frú forseti, að vandamálið sé útgjaldahliðin. Hv. ríkisstjórn verður að fara að taka á útgjaldahliðinni en henni er fyrirmunað að taka á henni. Hún getur það ekki. Hún er búin að gefast upp. Og hvað gerir hún? Hún kastar spilastokk upp í loftið og segir: Heyrðu, við skulum greiða atkvæði um Evrópusambandið. Allir hlaupa til og fara að tína upp spilin og rífast um þetta. Það er svo augljóst, frú forseti, að ríkisstjórnin er búin að gefast upp á verkefninu sem hún tók að sér, þ.e. að koma böndum á ríkisfjármálin. Hún getur ekki snúið sér að útgjaldahliðinni en hún getur snúið sér að tekjuhliðinni og lagt á skatta. Og nú segir hv. þingmaður að skattar séu að lækka.