157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:52]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans svar við mínu andsvari. Ég bendi hv. þingmanni á töflu 3.7 á bls. 49 í fjármálaáætluninni en þar sést einmitt með skýrum hætti hvernig skattbyrði er að minnka af því að tekjur ríkisins eru að vaxa hægar en hagkerfið. Þannig að skattbyrðin er að minnka, já, og eins og ég ítreka frá því áðan myndi ég halda að það væri eitthvað sem hv. þingmaður myndi fagna.

Hv. þingmanni er tíðrætt um útgjaldahliðina, sem ég fagna og tek heils hugar undir, og við sjáum m.a. í þessari fjármálaáætlun að það er talsvert meira aðhald á útgjaldahliðinni en aðgerðir sem verið er að ráðast í tekjumegin. Hv. þingmaður minntist m.a. á fækkun ríkisstarfsmanna um 1% eftir að þeim fjölgaði um 19% í tíð síðustu ríkisstjórnar. Ég átta mig ekki alveg á hvert hv. þingmaður er að fara þegar hann talar um útfærslu á þeirri fækkun í fjármálaáætlun. Vill hv. þingmaður að það sé listað upp í fjármálaáætlun hvaða ríkisstarfsmönnum eigi að segja upp og hverjum ekki? Ég ítreka það sem ég sagði áðan. Það eru góð tíðindi í þessari fjármálaáætlun. Það er verið að snúa hallarekstri í afgang sem eykst á tímabili áætlunarinnar og skattbyrðin er að minnka. Eru það ekki góðar fréttir, hv. þingmaður?