157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:56]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er rétt að óska hæstv. ráðherra og jafnframt þjóðinni til hamingju með þessa fjármálaáætlun en hún er bæði ábyrg og raunsæ. Það hefur verið undarlegt að hlýða á hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar vera með einhverja ólund í garð þess að endar séu að nást saman í gjöldum og tekjum ríkisins. Það hefur verið undarlegt hér í umræðunni. En við í Flokki fólksins erum einkar ánægð með þessa fjármálaáætlun enda byggist hún á því að ná fram markmiðum stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu innviða og ná árangri í bættum rekstri, uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og hjúkrunarrýma og stöðva kjaragliðnun lífeyrisþega og launafólks svo eitthvað sé talið upp. Þetta er góð áætlun, frú forseti. Meginmarkmið áætlunarinnar er einmitt að snúa við hallarekstri liðinna ára, hallarekstri síðustu ríkisstjórna, og ná tökum á útgjöldum ríkisins. Það er alveg ljóst að svo mun verða. Eftir átta ára hlé stefnum við í það að ríkissjóður verði rekinn með hagnaði á næsta ári. Það er jákvætt og ég hefði talið að það ætti að vera almennari ánægja með það markmið í umræðunum hér. Að vísu hefði vel mátt setja fram athugasemdir um að menn hefðu kannski ekki fyllilega trú á því að þetta markmið næðist, en það er mér illskiljanlegt að stjórnarliðar og stjórnarandstaðan leggist ekki á eitt um markmiðið með þessari áætlun.

Áætlunin gengur út á það að fylgja aðhaldssamri fjármálastefnu þar sem raunvöxtur útgjalda verður minni en vöxtur landsframleiðslu. Það verður til þess að lækka skuldir sem útgjöld af landsframleiðslu. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að ýta undir verðmætasköpun. Það kemur fram í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Það er mikilvægt að við virkjum háskólasamfélagið og einnig starfsemi háskólanna á landsbyggðinni — ég vil nefna Háskólann á Akureyri — til að taka þátt í uppbyggingu samfélagsins. Mér finnst það skipta miklu máli að hafa jákvæða stefnu til verðmætasköpunar. Því kemur þessi neikvæði tónn í stjórnarandstöðunni á óvart. Ef við viljum ná árangri þá þarf það að vera gert af ákveðinni bjartsýni og framsýni en ekki með hálfgerðu niðurrifstali. Það eru ekki draumfarir að ætla að auka verðmætasköpun eins og sumir halda fram. Það má jafnvel skoða það að auka hér verðmætasköpun og afla, breyta aflareglu. Það er rétt að huga að því að aflareglan sem lögð var á fyrir 15 árum — þorskstofninn er kominn í svipaða stöðu og þegar reglunni var breytt. Mér finnst það því blasa við að það megi jafnvel skoða það að taka upp fyrri aflareglu og fá þá mögulega 50.000 tonnum meira af þorski á næsta ári ef nýrri reglu væri fylgt. Það eru ófáir milljarðar. Og svo er rétt að skoða aflareglu í loðnu. Ef aflaregla sem var í gildi fyrir tíu árum hefði gilt á síðustu vertíð þá hefðum við haft 110.000 tonnum meiri loðnuafla upp úr hafinu. Það eru því víða tækifæri þó svo að ýmsir hér inni, sem tilheyra ekki stjórnarliðinu, sjái ekkert nema hálfgert svartnætti. Þannig að þetta er jákvætt, þetta eru jákvæð teikn og mér finnst það kannski vera aðalatriðið. Ég vonast eftir því að félagar og hv. nefndarmenn í stjórnarandstöðunni, sem koma til með að vinna úr þessari fjárhagsáætlun, muni gera það af bjartsýni og tryggja að hún nái fram að ganga og jákvæðni og uppbyggilegt tal verði til þess að við náum þessari áætlun fram.

Hugmyndafræðin á bak við fjármálaáætlun er sú að skapa meiri heildarsýn um opinber fjármál og bæta að auki umfjöllun um stefnumörkun þannig að hún verði vandaðri og formfastari til lengri tíma. Hugmyndin er ekki að ná fram nákvæmari sundurliðun einstakra verkefna á næstu kjörtímabilum. Markmiðið er að ná fram breiðari línum og að komandi fjárlagavinna verði markviss. Tilgangurinn er einmitt að setja almenn markmið um opinber fjármál og með því stuðla að jafnvægi til lengri tíma og skapa forsendur til hagkvæmari nýtingar mannafla, fjármagns og auðlinda. Auðvitað nær fjármálaáætlun til sveitarfélaganna enda er það hluti af opinberum rekstri og við þurfum að búa til jákvæða framtíðarsýn til að sveitarfélögin verði með í því að ná fram markmiðum sínum þannig að rekstur hins opinbera, hvort sem það er á vegum sveitarfélaga eða ríkisins, verði réttum megin við núllið.

Ef litið er nokkur ár til baka og farið yfir þá ófyrirsjáanlegu þætti sem nefndir hafa verið í umræðunni, hvernig þeir hafa haft áhrif á efnahagslífið, er alveg ljóst að þeir eru fjölmargir, bæði til góðs og svo til verri vegar, nú síðast hækkun olíuverðs í kjölfar stríðsins í Íran. En það hafa einnig verið jákvæðir þættir, við höfum haft hátt afurðaverð á fiski. Það er því margt sem ekki er hægt að segja til um. En breiða línan í þessu er að ná saman rekstri ríkissjóðs og ég held að við ættum að geta sameinast um það. Mér finnst það vera mjög mikilvægt. En það er lítið hald í áætlunum ef ekki er farið yfir hvernig til hefur tekist með fyrri áætlanir. Samhliða umfjöllun fjárlaganefndar um áætlunina tel ég ekki síður mikilvægt, og jafnvel enn mikilvægara, í stað þess að fjalla eingöngu um áætlunina sem slíka, að fara yfir framkvæmd fjárlaga og læra af því sem betur hefði mátt fara. Einn af þeim þáttum er augljóslega hvernig hefur tekist til með stórframkvæmdir. Ég vil nefna einn þátt en það mætti örugglega nefna þá fleiri. Ég vil nefna hér byggingu nýs Landspítala. Það var farið af stað með það verkefni árið 2012, byrjað að byggja 2018 og byggingunni átti að ljúka 2024 eða fyrir tveimur árum. En nú er komið í ljós að þessi bygging verður ekkert kláruð fyrr en í fyrsta lagi 2030–2031. Þeir milljarðar sem liggja þarna, og munu líklega enn liggja þar að fjórum árum liðnum, eru ónýttir. Ég tel að þetta sé einn af þeim þáttum sem við þurfum að læra af. Hvernig náum við að halda betur utan um framkvæmdir, stórframkvæmdir, þannig að þær dragist ekki? Það er mjög dýrt fyrir ríkissjóð og samfélagið að hafa þessa fjármuni þarna ónýtta. Og ef maður horfir á stöðu heilbrigðismála þá hamlar þetta þróun þeirra. Við erum að fara af stað með fleiri verkefni sem eru svona stórframkvæmdir og þess vegna þurfum við að fara yfir það hvernig við náum þessu saman. Ég tel einnig rétt að fara yfir framkvæmd fjárlaga þegar komið er að uppsöfnuðum fjárlagahalla. Það er eitt af verkefnunum að við náum betra aðhaldi þannig að þegar farið er fram úr áætlunum verði það gert upp innan skynsamlegs tíma hvenær þeim halla verði náð niður. Þannig að fjárlögin sem eru samþykkt, þegar allt er saman talið, allar stofnanir ríkisins, haldi.

Mér finnst þessi fjármálaáætlun boða jákvæða tíð og það er óskandi að hún nái fram að ganga. Ég tel að þingheimur allur ætti að sameinast um að við náum rekstri ríkissjóðs í plús úr mínus árið 2027. Það er verðugt verkefni. Ég vonast svo sannarlega eftir því að stjórnarandstaðan taki þátt í þessu verðuga verkefni fyrir þjóð og land.