fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans ræðu. En af því að hér eru nú fjórir í andsvörum þá er þetta ákaflega lítill tími og ég hef ekki nema eina mínútu til ráðstöfunar þá hyggst ég einbeita mér bara að einni lítilli spurningu. Eins og við þekkjum eru áætluð aukning tekjuráðstafana til ríkissjóðs um 26 milljarðar í viðbótartekjur á árinu 2027. Það eru hlutir sem við þekkjum. En svo núna þegar við fjöllum um þessa þingsályktunartillögu þá sjáum við að heildaráhrif af ólögfestum skattbreytingum á tímabilinu 2027–2031 eru áætluð á bilinu 23–57 milljarðar kr. Það er u.þ.b. 0,4–0,9% af vergri landsframleiðslu og efri mörkin því til að mynda hærri heldur en þau 0,7% viðmið sem voru takmörkin í kílómetragjaldinu og breytingum á því og voru notuð sem rök þar. (Forseti hringir.) Því langar mig bara að spyrja hv. þm. Sigurjón Þórðarson: Í hverju eru þessar skattahækkanir fólgnar á tímabilinu 2027–2031?