fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það kom reyndar ekki svar við spurningunni en það eru nú kannski ekki að verða nein sérstök stórtíðindi hér í þessum ræðustól. Ég spurði einfaldlega: Hvar er hægt að finna þessum hækkunum stað? Ég spurði ekki um hlutfall af þjóðarframleiðslu. Hins vegar nefndi ég að þessar áætlanir sem eru í tillögunni sem slíkri eru upp á 23–57 milljarða en það eru 0,4–0,9% af vergri landsframleiðslu, svoleiðis að það liggur algerlega fyrir að það er verið að hækka skatta. Ég er einfaldlega að spyrja hv. þingmann: Hvar? Ég er ekki að spyrja um hlutföll í töflum. Ég er að spyrja hann hverjir taki á sig þessa hækkun og vildi gjarnan að hv. þingmaður segði mér það.