fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og andsvörin en ég er, eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson, enn þá að bíða eftir svörum frá hv. þingmanni um skattahækkanirnar því að auðvitað á að ræða þær hér. En það er tvennt sem ég vildi líka spyrja að. Hv. þingmaður talar oft, sem er vel, um hagræðingu í ríkisrekstri en það er sérstaklega tilgreint á bls. 28 í álitsgerð fjármálaráðs hvað aðhaldsstigið er ótrúlega lítið í þessari fjármálaáætlun og að meðaltal mælikvarðanna verði 0,5% af vergri landsframleiðlsu 2027, um 0,3% 2028 og 2029 og um 0,1%, 2030–2031. Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því?
Sömuleiðis vil ég spyrja hv. þingmann um meintu kjaragliðnunina sem hefur verið sérstaklega rakin í álitsgerð fjármálaráðs, þeir finna hana ekki, þvert á móti, en það eru miklar áhyggjur af þessari lögfestingu. Ég vil því spyrja: Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af ábendingum fjármálaráðs hvað þetta varðar og hvar er þessi kjaragliðnun?