fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Því er auðsvarað að fyrir þá sem eru að reka baðlón þá er ekkert frábært að virðisaukaskatturinn sé hækkaður. Það er ekki frábært. En ef menn horfa til þess hvernig menn tóku hér í gær umræðu um lækkun á virðisaukaskatti, þegar hann var lækkaður á bensín niður í 11%, þá var það ekkert talið frábært hjá hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins vegna þess að það átti að tryggja að sú lækkun kæmi til neytenda. Ég held að þeir sem tala um að leggja af undanþágur og samræma virðisaukaskatt ættu nú að fara varlega í að velja hvar þeir ætli að taka niður í þeirri umræðu, frú forseti.