157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:27]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það er nú bara þannig að hvað svo sem áskorunum frá hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins líður þá mun ég nú ekkert skipta um skoðun hvað það varðar að það sé rétt að tryggja hér kjör ellilífeyrisþega. Það er mín skoðun að kjör þeirra eigi að fylgja kjörum annarra landsmanna, og hvort sem ég er með tappa í eyrunum eða ekki þá er þetta bara mín skoðun. En auðvitað þigg ég eftir sem áður öll ráð og vinnu stjórnarandstöðunnar í að ná fjárlögunum saman svo við náum fram því markmiði sem kemur fram í fjármálaáætlun og hallalausum fjárlögum 2027. Mér finnst það mikilvægt og ég vil bara þakka fyrir það og þakka fyrir þá vinnu sem Tómas Þór Þórðarson ætlar að leggja á sig fyrir land og þjóð til þess að þessi góða áætlun nái fram að ganga. Mér finnst það skipta máli og ég bara fagna því.