157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:28]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla að taka aðeins til máls undir þessu máli sem er að mínu mati risastórt. Það skiptir okkur verulegu máli og er leiðarstef og leiðarvísir okkar hér til næstu ára hvað varðar fjármál ríkisins, efnahagsstefnuna og hvert einstaka málaflokkar stefna. Við gagnrýndum það í fyrra, þegar við vorum að ræða þessa fjármálaáætlun, að það vantaði í hana markmið og mælikvarða og svo er enn. Þó horfir nú til betri vegar og ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir að bregðast við því ákalli okkar í stjórnarandstöðunni að fá þessi gögn sem við munum nú fá von bráðar og getum þá notað í okkar vinnu í fjárlaganefnd. Ég ætla ekki að eyða meiri tíma í þá umræðu en bara þakka fyrir það.

Það er margt í þessari áætlun sem er áhugavert. Ég var búinn að skrifa hér alveg fyrirtaksræðu, að mér fannst, sem byggði að stóru leyti á áhyggjum fjármálaráðs. Mér finnst hins vegar, virðulegur forseti, að við séum búin að eyða ágætistíma í umfjöllun um áhyggjur fjármálaráðs þannig að ég ætla að reyna að færa mig aðeins yfir á aðrar slóðir í þessari yfirferð minni. Ég vil þó að sjálfsögðu taka það fram að ég tek heils hugar undir mjög margt sem kemur fram í umsögn fjármálaráðs, hvort sem það er vísitölutenging almannatrygginga, stöðugleikareglan eða óútfærðar afkomubætur, verðbólguvæntingar og annað. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur sem erum í fjárlaganefnd að fara vel yfir þær áhyggjur sem þar birtast og eiga gott samtal við fjármálaráð þegar það kemur inn. Mögulega þurfum við að gera einhverjar lagfæringar á þessari fjármálaáætlun til að koma til móts við þær áhyggjur vegna þess að þetta eru ekki einhver hagsmunasamtök úti í bæ, þetta er einmitt það ráð eða þeir einstaklingar sem eiga að hafa eftirlit með fjárlögum og fjármálaáætlun og koma með sínar athugasemdir telji þeir einhvern misbrest á. Ég held því að það sé bara fínt að við tökum það alvarlega.

En það sem mig langar að tala um hér í byrjun er á svipuðum nótum og þau orðaskipti sem ég átti við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrr í dag. Það er varðandi grunnforsendur áætlunarinnar eins og hún liggur fyrir, þessarar fimm ára áætlunar, og það er óvissan. Ég geri mér grein fyrir því að auðvitað er hér um áætlun að ræða. Það er ómögulegt að segja til um það hvernig efnahagsumhverfi á Íslandi eða í heiminum verður árið 2031. Við verðum að horfa á þetta með þeim gleraugum og það geri ég svo sannarlega. Engu að síður er hér verið að leggja fram stefnumarkandi plagg. En það er þessi óvissa, virðulegur forseti, sem er bæði varðandi verðbólgu og vaxtastig.

Við höfum áhyggjur af kjarasamningunum, hvort þeir muni halda, hvort forsenduákvæðið í kjarasamningunum muni bresta. Það mun hafa veruleg áhrif á fjármálaáætlun ef það gengur ekki eftir eða ef þeir kjarasamningar halda ekki. Það mun gjörbreyta allri vinnu og öllum tölum sem við erum að skoða hér varðandi þessa fjármálaáætlun. Það er stór óvissuþáttur og ég held að hæstv. ríkisstjórn — þótt hún hafi komið fram með frumvarp til að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti þá held ég að það þurfi meira til, fleiri aðgerðir, til þess að koma verðbólgunni í það horf að kjarasamningar haldi. Aðstæður erlendis eru sömuleiðis óvissar. Þær munu hafa áhrif, óvissa á mörkuðum, hvort hún eykst eða minnkar. Eins og ég sagði líka í ræðu minni þá er líka til staðar óvissa varðandi umræður og kosningar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Niðurstaðan í þeim kosningum mun hafa efnahagsleg áhrif á Ísland, í hvora áttina sem er.

Að því sögðu vildi ég bara ávarpa það hér í upphafi umræðu um fjármálaáætlun að ég hef áhyggjur af því að forsendurnar séu hæpnar. Það er margt í áætluninni sem við þurfum að skoða og ég hef verulegar áhyggjur af. Mig langar að grípa niður í nokkra kafla á hundavaði þar sem tíminn er ekki langur. En ég hef áhyggjur af því, virðulegur forseti, að við séum að horfa hér á fjármagn í samgöngu- og fjarskiptamál sem er að lækka á tímabili áætlunarinnar úr 76 milljörðum í 74,8 og ég get ekki betur séð en að framlög til fjárfestinga í vegagerð eigi að standa í stað út tímabilið. Þau voru reyndar hækkuð, við skulum halda því til haga, um tæpa 6 milljarða milli áranna 2025 og 2026 en standa síðan í stað og heildarútgjöld til málaflokksins eru að fara að lækka í þeirri fjármálaáætlun sem er lögð fram nú. Af þessu hef ég áhyggjur, virðulegur forseti, verulegar áhyggjur, og mér finnst þetta vera í algeru ósamræmi við þau loforð sem voru gefin hér í þessum þingsal í umræðum um veiðigjöld, vörugjöld og kílómetragjald, en stjórnarliðar komu hér upp hver á fætur öðrum og töluðu um að fjármagnið sem kæmi út úr þessum skattstofnum ætti að fara í uppbyggingu vega á landsbyggðinni, 18 milljarðar á ári. Því miður sjáum við þá ekki í þessari fjármálaáætlun.

Það er talað um innviðafélagið og við vitum að frumvarpið um innviðafélagið er komið inn í nefnd. Þar er sömuleiðis verið að tala um að það þurfi 27–75 milljarða, ef ég man rétt, frá ríkinu. Mér finnst stórkostlega vanta kafla í fjármálaáætlun um innviðafélagið. Það er nefnt á nafn í kaflanum um samgönguáætlun, um samgöngumálin, en mér finnst afskaplega lítill gaumur gefinn að því hvernig ríkið ætlar að fjármagna það og hvernig það tvinnast inn í þá fjármálaáætlun sem við ræðum hér í dag. Eins og ég segi, við erum að tala um 27–75 milljarða sem ríkið mun þurfa að leggja inn. Ég kalla eftir því að það verði betur útlistað í þessari áætlun, það er vont að svo sé ekki.

Virðulegur forseti. Hér áðan var verið að spyrja stjórnarliða, formann fjárlaganefndar ef ég man rétt, um þessa 23–53 milljarða sem eru ólögfestar skattbreytingar í þessari áætlun. Það var verið að spyrja hvar ætti að taka þessa peninga og það er einfaldlega þannig að ég held að ég geti svarað því. Þetta er nefnilega lækkun á endurgreiðsluhlutfalli vinnu á verkstað, Allir vinna, sem hefur reynst afskaplega vel og munar gríðarlega um fyrir þá sem eru í framkvæmdum. Þetta var lækkað í 35%, var 100% þegar hæst stóð. Það á að fara að hækka skatta á baðlón, það á að fara í gjaldtöku af ferðamannastöðum. Það á að fara í bankaskatt. Það á að hækka fiskeldisgjaldið. Lágmarksskattur á fjölþjóðafyrirtæki verður hækkaður. Vitagjald verður hækkað. Nefna má forvarnir vegna innviða á Reykjanesskaga og breytingar á reiknuðu endurgjaldi sem mun t.d. lenda illa á íslenskum landbúnaði og íslenskum bændum. Þetta er til viðbótar við þá 30 milljarða sem var hækkunin hér um áramótin.

Síðan getum við tekið samgöngurnar, kílómetragjaldið, vörugjöldin, innviðagjald, flýtigjöldin — þetta eru 41 milljarður á ári í umferð. Ég skil ekki hvernig það er hægt að standa hér, virðulegur forseti, og tala um það að ekki eigi að hækka skatta. Það er bara óskiljanlegt. Þetta er staðan og þetta eru bara tölur sem ég er að taka innan úr frumvarpinu sjálfu. Mér finnst sömuleiðis óskiljanlegt að lækka eigi framhaldsskólana úr 53 milljörðum í 49 og reksturinn sömuleiðis. Á sama tíma á að fara að ráðast í uppbyggingu á fjórum verknámsskólum sem munu (Forseti hringir.) fjölga verknámsnemendum. En hvað gera menn? Skera niður.

Virðulegur forseti. Ég hlakka til að eiga umræðu um þetta mál í fjárlaganefnd því að það er algjörlega ljóst öllum sem hér eru inni að hér er af nógu að taka.