157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:41]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það sem ég var einfaldlega að gera og reyna að gera í minni ræðu var að lesa upp úr þingsályktunartillögunni sjálfri og lýsa þeim áhyggjum sem ég hef. Ég var ekki að biðja um að hv. þingmenn, hvorki Arna Lára Jónsdóttir né aðrir, þyrftu að vorkenna mér fyrir það. Hv. þingmaður getur alveg verið róleg. Ég mun komast í gegnum þetta án hennar vorkunnsemi og ég sef alveg ágætlega. Ég er hins vegar bara að lýsa því að sú óvissa sem er hér innan lands í efnahagsmálum er meiri en mér finnst stjórnarliðar almennt gera sér grein fyrir. Ég hef talað um það og talaði um það síðast í gær í þingsályktunartillögu sem lögð var fram varðandi breytingar á virðisaukaskatti á eldsneyti að ég teldi að það þyrfti meira til. Ég held að það þurfi meira til til þess að við náum stöðugleika í íslenskum efnahagsmálum, það þurfi fleiri aðgerðir. Ég hef raunverulegar áhyggjur af því í þessari fjármálaáætlun að ef ekkert frekar verður að gert þá getum við lent í þeirri stöðu að kjarasamningar séu í uppnámi. Þá er þessi ágæta fjármálaáætlun, sem er að mörgu leyti ágæt, í upplausn og þá er ekki stafkrók að marka það sem í henni stendur vegna þess að þá eru forsendurnar farnar. Þetta eru mínar áhyggjur. Ef hv. þingmaður hefur ekki sömu áhyggjur er það bara allt í góðu lagi en ég er hér í minni ræðu að lýsa því af hverju ég hef áhyggjur og ég held að ég hafi komið því bara þokkalega til skila. Við höfum oft verið hér við erfiðar aðstæður, mjög erfiðar aðstæður, hvort sem það var í Covid eða Reykjaneseldum. Við því var brugðist á mjög ákveðinn og afgerandi hátt og sumir þingmenn sem þá voru í stjórnarandstöðu kölluðu nú eftir frekari aðgerðum og enn þá meiri kostnaði sem var ekki brugðist við. En það var brugðist við, sem mér finnst persónulega ekki verið að gera nægilega vel hér.