fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Hvert hv. þingmaður, sá sem hér stendur, er að fara þegar er verið að tala um að það sé verið að draga saman í samgöngum þá er það bara talan sem stendur í fjármálaáætlun og hún skýrist af einhverju. Ég er ekki að gera athugasemdir við það. Hún skýrist að einhverju leyti af Hvammsvirkjun, það er rétt, en það er engu að síður lækkun á framlögum til Vegagerðarinnar. Það er bara það sem stendur í fjármálaáætlun. Það sem ég var að kalla eftir var það að mér finnst bara allt of lítið talað um þetta innviðafélag í fjármálaáætlun og hvernig það á að fjármagnast og hvernig það á að tengjast fjármálaáætlun. Mér finnst því bara allt of lítill gaumur gefinn ef ég á að vera algerlega heiðarlegur. Ef við erum að tala um að það þurfi 27–75 milljarða eftir því hvernig það verður fjármagnað þá finnst mér það vera þannig tala inn í fjárlaga- og fjármálaáætlun að hún hefði alveg getað verðskuldað meiri umræðu en hún fékk. Ég veit og er alveg sammála hv. þingmanni um að ef þau áform ganga eftir sem þar koma fram varðandi innviðafélagið — og eins og ég sagði í umræðunni um það félag þá er ég ekki á móti innviðafélagi. Ég held að það sé sú leið sem við þurfum að fara til að efla og koma okkur í þessar stærri framkvæmdir. En það sem mér finnst vont í umræðunni oft á þingi er nákvæmlega það að þó að ég sé sammála málinu þá get ég verið ósammála útfærslunni. (Forseti hringir.) Þá er það yfirleitt þannig að maður er úthrópaður hér, að maður sé á móti málinu. Ég er það ekki en ég get verið ósammála útfærslunni og verið að kalla eftir (Forseti hringir.) öðrum útfærslum. En já, ég veit að ég og hv. þingmaður eigum eftir að ræða þetta betur inni í fjárlaganefnd og ég hlakka til þess.