157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:48]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir framsöguna vegna fjármálaáætlunar fyrir árin 2027–2031, sem við ræðum hér í dag. Þá vil ég þakka þá umræðu sem farið hefur fram um áætlunina, en hún hefur um margt verið áhugaverð. Þingsályktunartillagan var lögð hér fram 26. mars síðastliðinn og mælt var fyrir henni fyrr í dag, eins og áður sagði. Sú fjármálaáætlun sem við ræðum miðar að því að styrkja stoðir íslensks efnahagslífs með auknum aga og festu í ríkisfjármálum. Í þessari fjármálaáætlun ber hæst að gert er ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með afgangi árið 2027 og afkoma verði síðan jákvæð á tímabili áætlunarinnar, en nokkuð mörg ár eru síðan sú niðurstaða fékkst síðast. Það er að sönnu svo að ekki er gert ráð fyrir miklum afgangi árið 2027 en hann mun aukast eftir því sem á áætlunina líður. Ég hef heyrt úr þessum ræðustól gert lítið úr þeim afgangi sem gert er ráð fyrir árið 2027 og það kemur mér sannast sagna á óvart að þingmenn minni hlutans, sem setið hafa í hv. fjárlaganefnd í a.m.k. nokkur ár, geri lítið úr afgangi þótt lítill sé í samanburði við heildarútgjöld ríkisins, ekki síst þegar um er að ræða hv. þingmenn sem hafa staðið að allt að 60 milljarða aukningu ríkisútgjalda á fjárlögum í meðförum þingsins. Það er von að 1,1 milljarður sýnist lág fjárhæð en hún er þó alla vega réttum megin við núllið, frú forseti. Það er rétt að halda því til haga að frumjöfnuður, þ.e. afkoma ríkissjóðs að frátöldum nettó — ég er ekki á Guðlaugstíma, er það?

(Forseti (KÁB): Klukkan kemst vonandi fljótlega í lag? Haltu bara ótrauður áfram.)

Guðlaugur Þór kvartaði svolítið yfir þessu, ég hélt ég væri kannski á hans tíma. En talan er alla vega réttum megin við núllið. Það er rétt að halda því til haga að frumjöfnuður, þ.e. afkoma ríkissjóðs að frátöldum nettóniðurstöðum vaxtatekna og vaxtagjalda, er um 90,7 milljarðar kr. þannig að við sjáum að vaxtakostnaður ríkisins er töluverður. Skuldahlutfall hins opinbera mun lækka markvisst á tímabilinu. Áætlað er að skuldahlutfall hins opinbera lækki úr 44% af landsframleiðslu árið 2026 í 41% árið 2031. Nokkrar hagræðingaraðgerðir eru tilteknar í fjármálaáætlun. Á meðal þeirra er 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu þar sem stefnt er að því að spara tæplega 4 milljarða kr. árlega án skerðingar á grunnþjónustu. Þá verða tekjur ríkissjóðs styrktar með frekari umbótum í skattkerfinu. Raunvöxtur útgjalda verður um 1–1,5% á tímabili áætlunarinnar. Það er töluvert undir 2% hámarki stöðugleikareglunnar.

Frú forseti. Mig langar að beina sjónum mínum að þeirri aðgerð sem ég nefndi hér að framan um fækkun opinberra starfsmanna. Starfsmenn ríkisins sinna mörgum afar mikilvægum verkefnum fyrir land og þjóð. Nægir þar að nefna nokkur af þeim framlínustörfum sem við verðum reglulega vör við; heilbrigðisstarfsfólk, starfsfólk í refsivörslukerfinu, starfsfólk í framhaldsskólum og opinberum háskólum, starfsfólk Stjórnarráðsins og fleiri. Það er nokkuð ljóst að án opinberra starfsmanna gengur rekstur ríkisins ekki upp. En við verðum að sýna ráðdeild í rekstri ríkisins og þó að deildar meiningar séu um hvort ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað eða fækkað þá er þeim sem fara með fjármál ríkisins rétt og skylt að meta á hverjum tíma hver þörfin er fyrir þjónustu ríkisins og þá hver starfsmannafjöldinn á að vera. Ég leyfi mér að segja að aðferðafræðin við slíka ráðdeild geti orkað tvímælis en það breytir ekki þörfinni fyrir að sýna hana.

Frú forseti. Forgangsröðun fjármuna eins og hún birtist í þessari fjármálaáætlun mun tryggja að áfram verði fjárfest í grunninnviðum, sérstaklega í heilbrigðiskerfinu, samgöngum, málefnum barna, menntamálum og öðrum lykilmálaflokkum sem styðja við verðmætasköpun, lífskjör og aukin lífsgæði. Gert er ráð fyrir að þeirri starfsemi sem snýr að beinni þjónustu við almenning verði hlíft við niðurskurði, svo sem heilbrigðisþjónustu og því sem við köllum í daglegu tali framlínuþjónustu. Ég vil í þessu sambandi nefna sérstaklega að gert er ráð fyrir því að fjárveitingar í rekstur úrræða fyrir börn aukist á árinu 2027 um rúmlega 1,4 milljarða kr. frá fjárlögum 2026 og munar þar mestu um aukin framlög til Barna- og fjölskyldustofu og ný framlög til Ráðgjafar- og greiningarstöðvar til að stytta biðlista barna eftir greiningu. Þá er gert ráð fyrir að tímabundið fjárframlag til styrkingar meðferðarúrræða og annarrar endurhæfingar verði gert varanlegt á tímabili fjármálaáætlunar. Einnig er gert ráð fyrir hækkun framlaga til fjölgunar stöðugilda innan lögreglunnar. Þau atriði sem ég nefni hér eru öll mál sem Viðreisn hefur sett á oddinn og er það vel að fjárveitingar til þessara þátta séu auknar.

Skýr áhersla er lögð á aukna verðmætasköpun í íslensku samfélagi í þessari fjármálaáætlun og er það í takt við nýja atvinnustefnu stjórnvalda. Sérstök áhersla er lögð á uppbyggingu máltækni og gervigreindar með reglubundnum fjárframlögum sem munu styrkja stöðu íslenskrar tungu í stafrænum heimi. Með framlagningu fjármálaáætlunar fyrir árin 2026–2030, þ.e. fyrri fjármálaáætlunar, var framsetning á markmiðum og mælikvörðum málaflokka færð í tíma þannig að stefnur málaflokka yrðu birtar síðar á árinu, þ.e. samhliða ársskýrslum ráðherra eða fyrir 1. júní í stað þess að vera birtar samhliða fjármálaáætlun að vori. Eftir sem áður er stefna málefnasviða kynnt í fjármálaáætlun í samræmi við 5. gr. laganna. Þessari breytingu er ætlað að tryggja að stefnumörkun málaflokka geti farið fram þegar fjárheimildir málaflokka liggja fyrir en fjárhagsrammar sem birtir eru í fjármálaáætlun eru aðeins sundurliðaðir eftir málefnasviðum í samræmi við kröfur laga um opinber fjármál. Með þessari breytingu fæst jafnframt betri samlegð við vinnu fagráðuneyta á uppgjöri fyrirliggjandi mælikvarða í ársskýrslu ráðherra. Með því að birta markmið og mælikvarða málaflokka á sama tíma og árangursmat fer fram skapast eðlileg samfella milli mats á fyrri aðgerðum og mótunar nýrra markmiða ef við á. Að mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins samræmast þessar breytingar lögum um opinber fjármál sem kveða á um að ráðherra skuli setja fram stefnu fyrir málefnasvið og málaflokka en gera ekki ítarlegar kröfur um birtingarmáta eða tímasetningu. Megintilgangur þessarar breytingar er betri tímasetning, samlegð, skipulagt framvindukort og gegnsæi.

Með breytingunni er gert ráð fyrir að greinargerð með fjármálaáætlun verði hnitmiðaðri og auðlesnari. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um að það er ágreiningur um framsetningu fjármálaáætlunar og hvaða gögn það eru sem eiga að fylgja henni. Ég fagna því að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafi nú höggvið á þann hnút og ákveðið að birta gögn um málaflokka innan málefnasviða ráðuneytanna fyrr en hann hafði áætlað. Það er ljóst í mínum huga að það er hlutverk hæstv. ráðherra að túlka lög um opinber fjármál varðandi það hvaða skyldur eru lagðar á hann og ráðuneyti hans um framlagningu gagna með fjármálaáætlun. Í því efni verður hann ekki bundinn af fyrri framkvæmd umfram það sem lögin áskilja. Á sama hátt er það hagur þingsins og hv. fjárlaganefndar að hafa sem mestar og gleggstar upplýsingar um fjármálaáætlunina og þau gögn sem hún byggir á við hina þinglegu meðferð.

Ég vil í þessu sambandi nefna afstöðu fjármálaráðs sem fram kemur í álitsgerð ráðsins um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030, sem er dagsett 14. apríl 2025. Fjármálaráð gagnrýnir í álitinu nýtt verklag sem kynnt var við framlagningu þeirrar fjármálaáætlunar og segir það gera ráðinu erfiðara en áður að uppfylla lögbundið hlutverk sitt. Í álitsgerð fjármálaráðs um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031, sem dagsett er 9. apríl 2026 og við ræðum hér, er ekki vikið að þessari gagnrýni en staðfest að framlögð fjármálaáætlun sé í samræmi við gildandi fjármálastefnu og einnig tiltekið að gangi forsendur og áætlanir eftir verði stöðugleikareglan uppfyllt og skuldaþróun í samræmi við áform stjórnvalda.

Annað sem ég vil nefna úr álitsgerð fjármálaráðs er umfjöllun þess um vísitölutengingu almannatrygginga. Þar segir, með leyfi forseta:

„Sú víðtæka og sjálfvirka vísitölutenging almannatrygginga sem nú hefur verið fest í lög felur í sér mikla hættu á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs. Fjármálaráð telur þetta áhættusama stefnumótun sem getur haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir sjálfbærni og festu opinberra fjármála.“

Ég tel mig ekki í neinni stöðu hér til að draga þessa afstöðu fjármálaráðs í efa enda er hún í samræmi við niðurstöður margra annarra sem tjá sig um þessa aðgerð.

Frú forseti. Ég tel samt nauðsynlegt að ræða lítillega þá breytingu sem gerð var á lögum um almannatryggingar þegar orðalagi 62. gr. almannatryggingalaga var breytt þannig að í stað orðsins „launaþróunar“ kom setningin „þróun frá 1. júní 2025 á launavísitölu, sbr. lög um launavísitölu“. Að mínu mati er það svo að sú breyting sem gerð hefur verið á 62. gr. laga um almannatryggingar leiði til þess að í stað þess að greiðslur almannatrygginga breytist í samræmi við fjárlög að teknu miði af launaþróun þá breytast þær í samræmi við þróun frá 1. júní 2025 á launavísitölu, sbr. lög um launavísitölu. Þessi breyting mun að líkindum leiða til hækkunar á greiðslum almannatrygginga en breyting á launavísitölu leiðir ekki endilega öll til hækkunar greiðslnanna heldur skal taka mið af þróun launavísitölu og að sjálfsögðu í samræmi við fjárlög hverju sinni.

Ég vil að lokum fjalla stuttlega um verðbólgu og vaxtastig í landinu. Það er kunnara en frá þurfi að segja að verðbólga sem mælist 5,4% er allt of há og það voru vonbrigði að vextir skyldu hækka við síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Það er þó viðbúið að Seðlabankinn nýti stjórntæki sín til að freista þess að hafa áhrif á verðbólguvæntingar. Ríkisstjórnin hefur nú kynnt skammtímaaðgerð sem gert er ráð fyrir að leiði til lækkunar á verðbólgu, a.m.k. til skamms tíma, en þróun alþjóðamála hefur verið með þeim hætti að verðbólguvæntingar hafa aukist. Það er mikilvægt að það náist tök á verðbólgunni og það er afar mikilvægt að við komumst aftur í lækkunarferli vaxta. Það skiptir almenning miklu máli en það þurfa allir, þar með talið hið opinbera, að leggja sín lóð á vogarskálar þess að verðbólguvæntingar minnki.