157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:00]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans andsvar. Fyrst varðandi frumjöfnuðinn sem hann talaði um: Til að tala sig að 20 milljarða aukningu í vaxtagreiðslum á tímabilinu er ljóst, eins og fram kom, og ég held ég hafi minnst á það í ræðunni, að miðað er við að skuldir séu að lækka sem mið af vergri landsframleiðslu. Hækkunin ein og sér segir kannski ekki til um það hvort þetta er — þetta er vissulega krónutöluhækkun en hún er líka hlutfallsleg. Varðandi útgjaldavöxt þá las ég reyndar upp úr álitsgerð fjármálaráðs varðandi það að það væri afstaða fjármálaráðs að þetta stæðist þær kröfur til áætlunarinnar sem eru gerðar að teknu tilliti til stefnunnar. En ég fór líka yfir það hvað það þýddi að mínu mati. Það mætti halda að ég ætlaði að setja mig á þann stað að setja mig yfir einhverja sem hafa aðrar skoðanir en ég og hafa reiknað þetta út með vísindalegum hætti og þá er ég að tala um hvaða áhrif hækkun almannatrygginga hafi á greiðslur almannatrygginga. Ég er bara að benda á það, og ég hef bent á það allan tímann sem við höfum haft þetta til skoðunar, og ég var í velferðarnefnd á þeim tíma sem þetta var þar til meðferðar, að það sé ekki tiltekið sérstaklega í lögunum að það eigi að fylgja — ef launavísitala hækki um 5% eigi öll þau 5% að skila sér inn í greiðslur almannatrygginga, heldur eigi að taka mið af launavísitölunni að teknu tilliti til fjárlaga.