fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir svarið. Hv. þingmaður kom nokkuð inn á birtingu gagna sem hefur verið mjög umdeild hér í þessum sal. Það er auðvitað kostur að hæstv. fjármálaráðherra hafi upplýst að þetta verði birt nú um næstu mánaðamót, ef ég skil það rétt, eftir umræðu í fjárlaganefnd. Ég hef nú kallað þetta þunnildi, greinargerð ráðuneytanna hvers og eins varðandi það með hvaða hætti menn ætla að komast á milli núverandi stöðu til þess endapunkts sem er rammaður inn í kafla hvers málefnasviðs. En það sem mig langar að spyrja út í er kannski eitthvað sem væri mjög skýrt ef birting gagna væri með þeim hætti sem hefðbundið var þar til þessi ríkisstjórn tók við. Á bls. 133, í kafla sem ég gef mér að hv. þingmaður sé búinn að kynna sér, 09 Almanna- og réttaröryggi, segir, með leyfi forseta:
„Framlög til rekstrar lækka um 0,7 ma.kr. sem skýrist af hagræðingaraðgerðum og niðurfellingum, en á móti til hækkunar er veitt framlag til fjölgunar stöðugilda innan lögreglu.“
Það er ekki verið að tala af sér með þessum texta svo að vægt sé til orða tekið. Telur hv. þingmaður að þetta væri fastara í hendi, ef svo má segja, ef þetta væri rammað inn með þeim hætti sem gert hefur verið fram til síðustu framlagningar fjármálaáætlunar? Þetta er mjög þunnt, það er hálf setning um þetta, og ég veit að hv. þingmaður hefur miklar væntingar til þess að við þetta verði staðið og að þetta verði útfært þannig að gagn verði að. (Forseti hringir.) En við fáum ekki mikil skilaboð í þeim efnum í þessari fjármálaáætlun eins og hún liggur fyrir. Sér hv. þingmaður fyrir sér að það verði til að mynda tekið sérstaklega á þessu í nefndaráliti meiri hlutans, svo að dæmi sé tekið, til að bæði lögreglumenn og borgarar landsins hafi fastara land undir fótum í þessum efnum?