157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:04]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans annað andsvar. Fyrst vil ég segja: Ég gleymdi að nefna í svari mínu áðan afstöðu mína til álitsgerðar fjármálaráðs. Ég tek mikið mark á henni. Það er kannski að einhverju leyti nördaskapur í manni en mér finnst gaman að lesa þetta plagg, mér finnst það áhugavert. Það er vissulega þannig að þetta er frekar neikvætt gagnvart þessari áætlun, það er ekki hægt að segja annað. En ég reikna með að það sé eðli slíkra álitsgerða að vera svona frekar neikvæðar og draga fram það sem er að, mála það mjög sterkum litum, en það sem er í lagi. Þó er það sérstaklega tekið fram að það sé jákvætt að vera með jákvæðan afgang. Birting gagna með áætluninni — ég tel að búið sé að höggva á þann hnút og er bara ánægður með það. Ég vona að við munum ekki þurfa að nota tímann í að munnhöggvast um það hér næstu daga.

Varðandi framlag til fjölgunar stöðugilda innan lögreglu þá tiltók ég það sérstaklega í minni ræðu, og get svo sem tekið undir það, að þarna er ekki fast að orði kveðið. Engu að síður hef ég þær væntingar að það verði fjölgað í lögregluliðinu. Það er sannarlega talað um fjölgun stöðugilda innan lögreglunnar og ég vil benda á að það skiptir svolitlu máli, við uppbyggingu lögreglunnar næstu árin, að við metum það hvers konar þekkingu og getu við þurfum að hafa þar inni. Það eru kannski ekki bara lögreglumenn sem vantar þar inn, það kunna að vera menn með tölvuþekkingu og menn með aðra almenna þekkingu. Það sést kannski síður ef borgaralegum starfsmönnum fjölgar innan lögreglunnar.